Stöndum með unga fólkinu í Kópavogi Elvar Bjarki Helgason skrifar 30. apríl 2026 06:31 Á síðustu vikum og mánuðum hef ég hitt fjölda íbúa sem segja sömu sögu: það er orðið of erfitt fyrir ungt fólk að koma sér þaki yfir höfuðið. Þetta er ekki tilfinning, heldur staðreynd sem öll gögn styðja. Samkvæmt greiningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) er ljóst að þörfin fyrir fjölbreytt og hagkvæmt húsnæði fer vaxandi, sérstaklega fyrir ungt fólk og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á markaði og það er á okkar ábyrgð að bregðast við því hér í Kópavogi. Hljóð og mynd fer ekki saman Ef við rýnum í gögnin og horfum á staðreyndirnar þá má sjá að í dag eru 410 Kópavogsbúar á biðlista eftir leiguíbúð hjá Bjargi. Þetta er eftirspurn frá raunverulegu fólki. Á sama tíma sýnir húsnæðisáætlun Kópavogs allt aðra mynd. Þar er gefið í skyn að þörfin fyrir almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignalága sé nánast engin, jafnvel aðeins örfáar íbúðir á næstu árum. Þegar 410 manns eru á biðlista en áætlunin gefur til kynna að þörfin sé vart til staðar, þá er eitthvað verulega að. Áður hefur verið bent á að húsnæðisáætlun Kópavogs endurspegli ekki raunverulega stöðu og skortur á gögnum og forsendum grafi undan niðurstöðum hennar. Sú gagnrýni á fullan rétt á sér. Ef við bætum við gögn HMS verður myndin enn skýrari, framundan er veruleg íbúðaþörf, sérstaklega í minni og hagkvæmari íbúðum sem henta ungu fólki og fyrstu kaupendum. Þrátt fyrir þetta ákvað meirihlutinn að hafna umsókn Bjargs íbúðafélags um stofnframlag vegna uppbyggingar 24 íbúða við Hallarhvarf. Sú ákvörðun er ekki bara umdeilanleg hún er í beinni mótsögn við eigin stefnu meirihlutans en í málefnasáttmála Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er skýrt kveðið á um að skapa eigi svigrúm fyrir óhagnaðardrifin byggingarfélög, hlutdeildarlán og námsmannaíbúðir. Nákvæmlega sá hópur sem við eigum að standa með Hlutverk óhagnaðardrifa leigufélaga er ekki að hámarka arð heldur að tryggja fólki öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði. Þetta eru lausnir fyrir fólk sem vinnur, greiðir sín gjöld en kemst ekki inn á markaðinn. Við erum ekki að bregðast við raunverulegri eftirspurn heldur taka ákvarðanir sem gera stöðuna verri fyrir ungt fólk og fjölskyldur í bænum. Höfundur skipar 5. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar