Hver má búa í Garðabæ? Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar 29. apríl 2026 17:32 Við þekkjum þetta mörg, uppaldir Garðbæingar, að hafa flutt úr bænum okkar til að hefja fullorðinslífið. Hluti ástæðunnar snýr að því að það getur verið spennandi og hentugt að búa á nýjum stað, en hluti af því er líka að framboð af húsnæði til kaups eða leigu í Garðabæ er varla til staðar fyrir fólk sem er að taka sín fyrstu skref utan foreldrahúsa. Þegar lítið framboð er af íbúðum fyrir ungt fólk, litlum íbúðum, þá rofnar samfellan í Garðabæ. Fólk flytur úr bænum og kemur ekki aftur, því það skýtur rótum annars staðar. Um allt höfuðborgarsvæðið eru Garðbæingar sem hefðu verið til í að búa í Garðabæ og ala upp börnin sín á eigin æskuslóðum, en áttu þess ekki raunhæfan kost vegna þess að keðjan rofnaði í upphafi. Þetta er ekki ásættanleg staða. Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hefur frá upphafi rekið harða séreignastefnu, með örfáum undantekningum. Á meðan ákall er í samfélaginu eftir því að sveitarfélög byggi fyrir tekjulægri hópa, minna húsnæði fyrir ungt fólk, öruggar og ódýrar leiguíbúðir fyrir fólk sem er ekki í stöðu til þess að fá háar fjárhæðir lánaðar frá foreldrum fyrir útborgun, þá skilar Garðabær auðu - og það á fordæmalausu uppbyggingartímabili. Tækifærunum til þess að skapa heilbrigðan húsnæðismarkað í Garðabæ hefur þannig verið glutrað niður, einu af öðru, á undanförnum árum. Fólk á Íslandi kaupir fasteignir því það er nokkuð örugg fjárfesting sem getur ýtt undir velsæld fjölskyldna með tímanum. Ég skil því vel þá hugsun stjórnmálamanna að vilja að sem flest fólk eignist eigið húsnæði. Það sem hins vegar gengur gegn yfirlýstu markmiði séreignastefnu er sú staðreynd að fólk sem býr í ótryggu leiguhúsnæði er ekki í stöðu til þess að safna sér fyrir íbúð á meðan. Séreignastefna eins og hún er rekin í Garðabæ, með engri áherslu á aðra kosti til að koma sér upp heimili, viðheldur þannig misskiptingu auðs í samfélaginu og ýtir undir húsnæðisóöryggi og jafnvel fátækt. Samhliða býr hún einfaldlega til einsleitni. Maður hefði haldið að það væri að minnsta kosti keppikefli hjá meirihlutanum að byggja mjög litlar íbúðir fyrir yngstu hópana til kaups, en það er heldur ekki raunin. Nýjar íbúðir í fjölbýli í Garðabæ eru stórar og dýrar. Þegar þessi uppbyggingaráhersla Sjálfstæðisflokks er sett í samhengi við há þjónustugjöld, ónægan fjárhagslegan stuðning við barnafjölskyldur í Garðabæ og örfáar félagslegar íbúðir eru skilaboðin frá meirihlutanum skýr: Hérna á efnað fólk að búa. Garðabæjarlistinn hafnar þessari hugsun, því við vitum að fjölbreytni er styrkur. Við viljum vera hluti af bæ sem tekur samfélagslega ábyrgð og þar sem allt fólk fær að tilheyra. Við viljum sjá fjölbreytta uppbyggingu húsnæðis sem nær utan um fleiri hópa fólks, að ungt fólk neyðist ekki til þess að flytja úr Garðabæ til að koma undir sig fótunum. Tækifærin framundan eru mýmörg, það er ekki of seint að snúa þessu við. Garðabæjarlistinn er tilbúinn í verkefnið. Höfundur er bæjarfulltrúi í Garðabæ og oddviti Garðabæjarlistans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg Þorvaldsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar