Umferðarmál í Urriðaholti – Flótti frá vandanum Vilmar Pétursson skrifar 29. apríl 2026 10:48 Með fjölgun íbúa í Urriðaholti og uppbyggingu þjónustu í Kauptúni hefur álag á inn- og útkeyrsluleiðina í hverfið aukist gríðarlega og annar enganveginn umferðinni. Unnið er að opnun út á Flóttamannaveg sem mun vonandi eitthvað létta á álaginu á núverandi innkeyrslu inní hverfið. Ég óttast því miður að það verði óverulegt og þessi tenging verði fyrst og fremst flóttaleið og gagnsemin felist í að hafa fleiri en eina leið í hverfinu ef meginleiðin lokast. Flóttamannavegurinn er í dag stórhættulegur vegur og þó að áform séu um að endurbyggja hann er í raun ábyrgðarhluti að auka umferð um hann áður en þeim framkvæmdum er lokið. Opnun inná Flóttamannaveg gæti einnig orðið þess valdandi að umferð sem kemur úr efri byggðum Hafnarfjarðar og Reykjanesi á leið í Kauptún velji að fara Flóttamannaveg og í gegnum Urriðaholtið þannig að umferð um hverfið aukist. Leiðin út á Flóttamannaveg fer einnig í gegnum mjög fjölfarna götu þar sem börn eru að fara yfir í leiksvæðið í Vinargarði og í skólann. Margir foreldrar eru því uggandi. Aðskilja umferð í Kauptún frá umferð í Urriðaholt Eina varanlega lausnin á vandanum er að aðskilja umferð í Kauptún frá umferð í Urriðaholtið. Uppi eru hugmyndir um að hringtorg komi á Reykjanesbraut á móts við nýju Bónusverslunina sem muni sinna umferð í fyrirhugað hverfi í Setbergi og Kauptún. Hönnun, tímasetning eða endanleg útfærsla eru þó ekki komin. Ekki er heldur skýrt að við þá framkvæmd verði umferð í Kauptún aðskilin umferð í Urriðaholtið. Það er mikilvægt að bæjaryfirvöld í Garðabæ þrýsti á um að vinna, hönnun og framkvæmdir við framtíðarlaus hefjist sem fyrst og fari af stað þó uppbygging hverfisins í Setbergi hefjist síðar. Ef þessar framkvæmdir verða ekki settar á dagskrá fljótlega þyrfti að fara í framkvæmdir til að létta á umferð um gatnamótin við Reykjanesbraut þar til framtíðarlausn væri komin. Gera notkun almenningssamgangna að fýsilegri valkosti Aðrar leiðir til að minnka umferð í hverfinu eru að minnka þörf á notkun einkabíls með aukningu á þjónustu í hverfinu og að gera almenningssamgöngur að fýsilegum valkosti. Í dag eru almenningssamgöngur ekki valkostur fyrir mjög marga íbúa Urriðaholts vegna þess að það tekur alltof langan tíma að komast á áfangastað. Langtímahagsmunirnir eru að tryggja góðar tengingar við Borgarlínu. Til að auka notkun á almenningssamgöngum og minnka skult leggur Samfylkingin til að frítt verði í strætó fyrir börn og ungmenni. Samgöngumiðstöð í Kauptúni og aðgengi þangað bætt Í dag er stoppustöð fyrir strætó nr 21 í Kauptúni en sú leið myndar ágætar tengingar við Hafnarfjörð, Smárlind og Mjódd. Þessi vagn mun einnig tengjast við leið1 í Borgarlínu í Smáralind og mun því einfalda leiðina á staði eins og Landspítala og Háskólann í Reykjavík. Vegalengdin niður í Kauptún fyrir Íbúa í Urriðaholti er þó fyrir marga það löng að þetta er ekki fýsilegur valkostur. Við í Samfylkingunni sjáum fyrir okkur að með uppbyggingu aðstöðu og betra aðgengi íbúa hverfisins að Kauptúni gætu almenningssamgöngur orðið að valkosti fyrir fleiri. Þetta felur í sér: Koma upp aðstöðu þar sem hægt væri á öruggan hátt að geyma hjól, varin fyrir veðri og vindum. Fólk gæti þá hjólað í Kauptún skilið hjólið eftir og tekið strætó. Láta strætó nr. 22 sem gengur um Urriðaholt stoppa í Kauptúni á leið sinni úr og í hverfið. Þetta væri ekki eingöngu gott vegna tengingar við leið 21 heldur auðveldaði þeim sem væru að sækja þjónustu í Kauptún og treysta sér ekki til að ganga. Hafa aðgengilega deildibíla Í Kauptúni sem fólk gæti nýtt þegar það þyrfti. Þetta eru ekki flóknar eða dýrar aðgerðir en með þeim og aukinni nærþjónustu í hverfinu gæti þetta skapað möguleika fyrir ýmsa sem í dag þurfa að reka tvo bíla að vera með einn bíl. Það er mikill sparnaður í heimilisrekstrinum fólginn í því. Höfundur skipar 4. sæti Samfylkinarinnar í Garðabæ fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Garðabær Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar