Hildur Björnsdóttir og bílastæðin í borginni Karólína M. Jónsdóttir skrifar 29. apríl 2026 10:03 Ég var að ræða við sjálfstæðismann um daginn um fækkun bílastæða í borginni. Hann sagði mér frá kosningaloforðum þeirra um að fjölga aftur stæðum og benti mér á grein um þetta efni í Morgunblaðinu, eftir oddvita þeirra, Hildi Björnsdóttur. Rannsókn á samkvæmni Hildur hefur verið gagnrýnd að undaförnu fyrir loðin svör og að hún segði eitt fyrir kosningar en annað þess á milli. En það er ýmislegt sagt um frambjóðendur fyrir kosningar sem á ekki við rök að styðjast og kannksi byggt á misskilningi og sögusögnum. Ég ákvað því að fara í eigin rannsóknarvinnu, finna þetta loforð oddvitans og skoða síðan hver hafi verið afstaða hennar til málsins á vettvangi borgarstjórnar. Hægt er að fletta upp á vefsíðu borgarinnar hvenær tiltekin mál hafa verið afgreidd, t.d. í skipulagsráði, borgarstjórn og borgarráði, og hvernig borgarfulltrúar hafa greitt atkvæði. Það getur verið svolítið snúið að finna þessa fundi en ég held mér hafi tekist nokkuð vel upp. Kosningaloforð Hildur Björnsdóttir, skrifaði grein í Morgunblaðið 9. apríl sl. þar sem hún fer yfir helstu kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins í samgöngumálum. Þar er hún ansi óljós í afstöðu sinni til Borgarlínu. En um bílastæðin segir hún skilmerkilega: „Sjálfstæðisflokkurinn hyggst kollvarpa bílastæðastefnu borgarinnar svo hún mæti betur þörfum íbúa og atvinnulífs. Vinda þarf ofan af breytingum á bílastæðagjöldum í miðborg sem leiddu til þess að gjaldsvæði voru stækkuð, gjaldskrár voru hækkaðar og gjaldskyldutími lengdur. Hefur gjaldskyldan orðið að íþyngjandi miðborgarskatti sem fælir landsmenn frá því að sækja verslun og þjónustu á þetta öfluga markaðssvæði.“ Hún segir einnig: „Sjálfstæðisflokkurinn hyggst fella brott íþyngjandi kvaðir um fjölda bílastæða við nýbyggingar.." Hildur féll á prófinu Þetta eru skýr og flott loforð. Nú er bara að sjá hvort oddvitinn hafi ekki alltaf verið heil í þessari afstöðu sinni. Eftir töluverða leit og smá aðstoð komst ég að þeirri niðurstöðu að tvær tillögur hafa verið mikilvægastar fyrir takmarkanir meirihlutans á bílastæðum í borginni. Á borgarstjórnarfundi 2. mars 2021, samþykkti meirihlutinn tvö prósent fækkun bílastæða á hverju ári til frambúðar. Það nemur tæpum 600 bílastæðum á ári. Frá 2021 hefur þetta kostað borgarbúa hátt í 3000 bílastæði. Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði gegn tillögunni í borgarstjórn, að undanskildum tveimur borgarfulltrúum þeirra, Hildi Björnsdóttur og Katrínu Atladóttur. Þær klufu sig frá hinum sex borgarfulltrúum sjálfstæðismanna í málinu, stóðu með meirihlutanum og samþykktu tillöguna. Þann 29. júní 2023, var samþykkt í Borgarráði 40 prósenta hækkun á gjöldum bílastæða. Ég held að það sé mesta hækkun á bílastæðagjöldum sem borgarstjórn Reykjavíkur hefur nokkurn tíma samþykkt. Hildur sat þann fund og ákvað að greiða ekki atkvæði gegn þessari gríðarlegu hækkun. Hún sat hjá. Það er alveg ljóst að afstaða Hildar er allt önnur á þessum tveimur fundum heldur en þau kosningaloforð sem hún setti fram í Morgunblaðinu þann 9. apríl sl.. Þetta heitir að segja eitt og gera annað. Ég hafna slíkum vinnubrögðum og kýs ekki slíka stjórnmálamenn. Höfundur er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bílastæði Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar