8. sætið Bjarni Fritzson skrifar 28. apríl 2026 10:53 „Ég hefði nú viljað sjá þig ofar á listanum“ er setning sem ég hef heyrt seinustu daga og er nú líklega gott dæmi um að hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það. Fyrir utan hvað listinn okkar er stútfullur af harðduglegu og hæfileikaríku fólki, þá er sko engin tilviljun að ég vermi áttunda sætið. Nei, nei, þetta er allt saman vel úthugsað. Því ólíkt Jóni Gnarr, sem ég reyndar dýrka bæði sem grínista og manneskju, þá er ég ekki að leita mér að þægilegri innivinnu. Ég fæ reyndar ónotahroll um allan líkamann bara við það að segja þetta orð: ÞÆGILEG INNIVINNA. Enda vanur að skrifa bækur á daginn, þjálfa handbolta á kvöldin og halda sjálfstyrkingarnámskeið um helgar. Það má eiginlega frekar segja að ég sé að leita mér að ÓÞÆGILEGRI VINNU. Því eina ástæðan fyrir því að ég er að bjóða mig fram er sú að ég vil breytingar í borginni og breytingar geta verið erfiðar. Sérstaklega þegar um er að ræða kerfi sem situr svo fast í sömu hjólförunum að það hreyfist á við hraða snigilsins. En breytingar ættu aldrei að vera gerðar nema með öflugum stuðningi borgarbúa og með það í huga ákvað ég að taka áttunda sætið. Því þegar við horfum til kjörtímabilsins sem senn er að ljúka, þá er það alveg ljóst að það verða engar raunverulegar breytingar nema að Sjálfstæðisflokkurinn fái góða kosningu og nái að minnsta kosti átta mönnum inn. Höfundur skipar áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bjarni Fritzson Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
„Ég hefði nú viljað sjá þig ofar á listanum“ er setning sem ég hef heyrt seinustu daga og er nú líklega gott dæmi um að hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það. Fyrir utan hvað listinn okkar er stútfullur af harðduglegu og hæfileikaríku fólki, þá er sko engin tilviljun að ég vermi áttunda sætið. Nei, nei, þetta er allt saman vel úthugsað. Því ólíkt Jóni Gnarr, sem ég reyndar dýrka bæði sem grínista og manneskju, þá er ég ekki að leita mér að þægilegri innivinnu. Ég fæ reyndar ónotahroll um allan líkamann bara við það að segja þetta orð: ÞÆGILEG INNIVINNA. Enda vanur að skrifa bækur á daginn, þjálfa handbolta á kvöldin og halda sjálfstyrkingarnámskeið um helgar. Það má eiginlega frekar segja að ég sé að leita mér að ÓÞÆGILEGRI VINNU. Því eina ástæðan fyrir því að ég er að bjóða mig fram er sú að ég vil breytingar í borginni og breytingar geta verið erfiðar. Sérstaklega þegar um er að ræða kerfi sem situr svo fast í sömu hjólförunum að það hreyfist á við hraða snigilsins. En breytingar ættu aldrei að vera gerðar nema með öflugum stuðningi borgarbúa og með það í huga ákvað ég að taka áttunda sætið. Því þegar við horfum til kjörtímabilsins sem senn er að ljúka, þá er það alveg ljóst að það verða engar raunverulegar breytingar nema að Sjálfstæðisflokkurinn fái góða kosningu og nái að minnsta kosti átta mönnum inn. Höfundur skipar áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar