E-listinn er ekki málið áfram í Reykjavík – Miðflokkurinn er það Helgi Áss Grétarsson skrifar 28. apríl 2026 09:20 Völd og áhrif embættismanna Reykjavíkurborgar eru mikil. Sumir myndu segja of mikil og hafa þá í flimtingum að kerfið í borginni sé bara hluti af valdamesta stjórnmálaflokki á Íslandi, E-listanum, lista embættismanna. Slík greining á völdum og áhrifum embættismannakerfis Reykjavíkurborgar kann að vera ósanngjörn þar eð auðvitað þarf slíkt kerfi að vera starfandi til að hægt sé að hrinda stefnumálum í framkvæmd. En stjórnmál snúast ekki eingöngu um kerfisbundnar lausnir á vandamálum samfélagsins heldur hvaða gildi og grunngerð einkennir stjórn hins opinbera. Þannig er augljóst að skrifræðið við stjórn Reykjavíkurborgar er orðið of mikið og forsjárhyggjan alltumlykjandi. Þessu þarf að breyta, meðal annars á sviði byggingar- og skipulagsmála, á sviði stafrænnar þjónustu og við rekstur borgarapparata á borð við heilbrigðiseftirlitið sem gefa út starfsleyfi og rekstrarleyfi. Með þessari upptalningu er á engan hátt gert lítið úr því starfi sem margt öflugt starfsfólk borgarinnar sinnir á hverjum degi. Aðalatriðið er að láta mannauð borgarinnar sinna verkefnum sem skipta mestu máli, bæði í bráð og lengd - beina orku og tíma starfsfólks að grunnþjónustu borgarinnar. Við þurfum ekki á fagurgala stjórn- og embættismanna að halda – meira er um vert að leysa úr raunverulegum áskorunum í skólamálum, í samgöngumálum og í velferðarmálum. Áframhaldandi stjórn á grunni svokallaðs sérfræðingavalds embættismanna er ekki málið fyrir Reykjavík. Miðflokkurinn er það frekar. Hann þorir að taka á samfélagslegum meinum með raunsæjum hætti og teflir fram oddvita í borgarstjórnarkosningum sem hefur áratuga reynslu af því að stýra stórum rekstrareiningum. Við þurfum nefnilega á vorhreingerningu að halda í Ráðhúsi Reykjavík hinn 16. maí næstkomandi. Fyrir þá borgarbúa sem vilja breytingar er besti leikurinn fram á við að kjósa Miðflokkinn. Tækifærið er núna! Höfundur er varaborgarfulltrúi og skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Völd og áhrif embættismanna Reykjavíkurborgar eru mikil. Sumir myndu segja of mikil og hafa þá í flimtingum að kerfið í borginni sé bara hluti af valdamesta stjórnmálaflokki á Íslandi, E-listanum, lista embættismanna. Slík greining á völdum og áhrifum embættismannakerfis Reykjavíkurborgar kann að vera ósanngjörn þar eð auðvitað þarf slíkt kerfi að vera starfandi til að hægt sé að hrinda stefnumálum í framkvæmd. En stjórnmál snúast ekki eingöngu um kerfisbundnar lausnir á vandamálum samfélagsins heldur hvaða gildi og grunngerð einkennir stjórn hins opinbera. Þannig er augljóst að skrifræðið við stjórn Reykjavíkurborgar er orðið of mikið og forsjárhyggjan alltumlykjandi. Þessu þarf að breyta, meðal annars á sviði byggingar- og skipulagsmála, á sviði stafrænnar þjónustu og við rekstur borgarapparata á borð við heilbrigðiseftirlitið sem gefa út starfsleyfi og rekstrarleyfi. Með þessari upptalningu er á engan hátt gert lítið úr því starfi sem margt öflugt starfsfólk borgarinnar sinnir á hverjum degi. Aðalatriðið er að láta mannauð borgarinnar sinna verkefnum sem skipta mestu máli, bæði í bráð og lengd - beina orku og tíma starfsfólks að grunnþjónustu borgarinnar. Við þurfum ekki á fagurgala stjórn- og embættismanna að halda – meira er um vert að leysa úr raunverulegum áskorunum í skólamálum, í samgöngumálum og í velferðarmálum. Áframhaldandi stjórn á grunni svokallaðs sérfræðingavalds embættismanna er ekki málið fyrir Reykjavík. Miðflokkurinn er það frekar. Hann þorir að taka á samfélagslegum meinum með raunsæjum hætti og teflir fram oddvita í borgarstjórnarkosningum sem hefur áratuga reynslu af því að stýra stórum rekstrareiningum. Við þurfum nefnilega á vorhreingerningu að halda í Ráðhúsi Reykjavík hinn 16. maí næstkomandi. Fyrir þá borgarbúa sem vilja breytingar er besti leikurinn fram á við að kjósa Miðflokkinn. Tækifærið er núna! Höfundur er varaborgarfulltrúi og skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar