Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Jakob Bjarnar skrifar 27. apríl 2026 13:29 Pétur spyr hvort bílastæðabændur séu hluti af ferðaþjónustunni? Speculator á X hendir inn sprengju og holskeflan brestur þar sem fólk lýsir óheyrilegri dýrtíð á Íslandi. vísir/Vilhelm/Einar „Þessi umræða á X veldur okkur áhyggjum, þetta er ekki gott og hefur áhrif á ímynd Íslands með neikvæðum hætti,“ segir Pétur Óskarsson formaður Samtaka ferðaþjónustunnar í samtali við Vísi.
Nýverið birtist á X stutt færsla sem Speculator setti í loftið og er svohljóðandi: „Iceland has perfected squeezing rich tourists for their money. Even as a dutchman i'm appalled / impressed“ sem útleggst á íslensku í lauslegri þýðingu: „Ísland hefur fullkomnað þá list að kreista peninga út úr ríkum ferðamönnum. Sem Hollendingur er ég fullur hneykslunar/aðdáunar.“ Iceland has perfected squeezing rich tourists for their money. Even as a dutchman i'm appalled / impressed— Speculator (@TheSpeculator0) April 26, 2026 Og það var eins og Hollendingurinn, sem kallar sig Speculator, hefði hent sprengju á X. Nú þegar hefur ein milljón séð færsluna, tæp sex þúsund manns hafa lækað, 88 hafa tjáð sig og flestir lýst hræðilegri verðlagningu sem þeir hafa upplifað á Íslandi og þrjú hundruð hafa dreift færslunni áfram. Þúsund kall fyrir að leggja bílnum Speculator segir Íslendinga orðna sérfræðinga í að kreista veski ferðamanna, ef þú viljir til að mynda leggja bílnum þínum einhvers staðar þar sem enginn sé kosti það þúsund kall. Vísir hefur reyndar fjallað um þessi bílastæðamál en hér virðist sem ríki villta vestrið í þeim efnum og kúrekarnir eru mættir til að fleyta rjómann. Þessar hugleiðingar ollu holskeflu þar sem hrelldir ferðamenn tjáðu sig. Dimitri Geier er einn og hann segist aldrei gleyma leigubílaferð frá flugvellinum sem kostaði hann rúmar fimmtíu þúsund krónur. Skál af miso-súpu á fjögur þúsund krónur Háðuglegustu ummæli eru látin falla í stórum stíl, Íslendingar viti að þú munir aldrei koma aftur og því sé um að gera að rukka nógu mikið, eins og fjögur þúsund krónur fyrir skál af miso-súpu. „Þeir selja dósir af hreinu íslensku lofti. „fckn brilliant“,“ segir einn. Og innfæddir taka í sama streng og segjast vera að sligast undan verðlaginu. Bílastæðamálin eru reyndar sérstakur kapítuli og aðilar innan ferðaþjónustunnar eru ekkert endilega á því að bílastæðabændur séu partur af ferðaþjónustunni, frekar að þeir hafi hengt sig utan á hana. Og að þeir séu undanþegnir virðisaukaskatti, sem sé brjálæði. Ef auðlindaskattar eigi ekki við þar, hvar eiga þeir þá heima? Menn rukki bara eins og óðir. Ástandið er komið úr böndum Pétur segir þetta ekki koma á óvart. „Já, þetta er svolítið farið úr böndunum. Og kom ekki á óvart,“ segir hann og bendir á grein sem hann skrifaði árið 2021 og birti á Vísi. Staðan hefur ekki lagast nema síður sé: „Já, því miður. Hægt að rukka hvar sem er og engar skyldur á þeim sem rukkar. Góðu fréttirnar eru þær að ferðamálaráðherra ætlar að ganga í málið, en þó ekki fyrr en 2027.“ Pétur bendir á atvinnuvegastefnu Íslands, nánar tiltekið fjórðu grein um skýra lagaumgjörð um ábyrgð, öryggi og aðgengi á skilgreindum landsvæðum. Aðgerðin á að skýra ábyrgð, öryggi og umgengni á ferðamannastöðum og öðrum skilgreindum landsvæðum, óháð eignarhaldi. Bílastæðabændur varla hluti ferðaþjónustunnar Maður hlýtur að spyrja: Er gegnumgangandi græðgi vandamál í ferðaþjónustunni? „Eru bílastæðabændur í ferðaþjónustu? Þeir eru að bregðast við og nýta sér hliðaráhrif greinarinnar,“ svarar Pétur. Pétur telur að stjórnvöld hljóti að grípa inní, sem þau ætla að gera en þó ekki fyrr en 2027.vísir/einar En athugasemdirnar á X snúa ekki einvörðungu að bílastæðum heldur almennt, þar spara menn ekki stóru orðin; um dýrtíð almennt á Íslandi? „Já, það er almennt og hefur með ofursterka krónu, hæstu laun í heimi, verðbólgu og vaxtastig að gera. Ekki græðgi ferðaþjónustufyrirtækja enda varaði Seðlabankinn við því að veik eiginfjárstaða ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi væri áhættuþáttur fjármálastöðugleika. Þau standa almennt verr en önnur fyrirtæki á Íslandi og verr en sambærileg fyrirtæki í nágrannalöndum okkar,“ segir Pétur.
Samfélagsmiðlar Ferðaþjónusta Bílastæði Rekstur hins opinbera Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Selur eftir þrjátíu og fimm ár Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Sjá meira