Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. apríl 2026 23:39 Breski fáninn prýðir eyjarnar víða, meðal annars á þessum steini. Getty Breska ríkisstjórnin ítrekar að Bretland muni ekki láta Falklandseyjar af hendi. Í leknum tölvupósti úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna er því velt upp að endurskoða stuðning við tilkall Bretlands til eyjanna vegna meints skeytingarleysis Breta í stríðinu við Íran.
Þessi tölvupóstur sem um ræðir fjallar um mögulegar aðferðir við að refsa Bretum fyrir að taka ekki þátt í árásum Bandaríkjamanna á Íran. Ein aðferðin sem lögð er til felur í sér að endurskoða stuðning við tilkall Breta til „nýlendna“ og eru Falklandseyjar þar sérstaklega teknar til dæmis. Falklandseyjar eru eyjaklasi í Suður-Atlantshafi um 480 km til suðausturs frá strönd Argentínu. Íbúar eru um 3600 talsins, aðallega innfæddir Falklandseyingar af breskum uppruna sem hafa ensku að móðurmáli og eru breskir ríkisborgarar. Eyjarnar voru mannlausar áður en Evrópumenn settust þar að. Árið 1982 gerðu Argentínumenn innrás á eyjarnar en voru hraktir þaðan af bresku herliði eftir 74 daga stríð þar sem létu mörghundruð manns lífið. Argentínumenn hafa enn ekki gefið upp tilkall sitt til eyjanna. „Við gætum ekki verið skýrari hvað afstöðu Bretlands til Falklandseyja varðar. Hún er viðvarandi. Hún er óbreytt. Yfirráð yfir eyjunum eru í höndum Bretlands og sjálfsákvörðunarréttur eyjanna er í fyrirrúmi,“ segir fjölmiðlafulltrúi breska forsætisráðuneytisins við Guardian. Leiðtogar Íhaldsflokksins, Endurbótaflokksins og Frjálslyndra demókrata hafa einnig brugðist ókvæða við og ganga þeir allir út frá því að tölvupóstinum hafi verið lekið vísvitandi til að ögra Bretum. Á meðan á átökunum stóð árið 1982 veittu Bandaríkin Bretum stuðning í formi vopnagjafa og aðgang að gervihnattamyndum. Lífið á eyjunum hefur verið með kyrrum kjörum síðan en eins og fyrr segir hefur Argentína aldrei gefið tilkall sitt upp og á forsetastól í Búenos Aíres situr nú Javier Milei, náinn bandamaður Donalds Trump.
Bretland Bandaríkin Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira