„Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. apríl 2026 08:02 Katrín Ásbjörnsdóttir kvaddi Blika með titli og snýr sér nú að sérfræðingshlutverki í Bestu mörkunum. Vísir/Anton Brink Katrín Ásbjörnsdóttir verður í nýju hlutverki í kringum Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar. Meiðsli hafa haldið henni frá vellinum síðustu misseri og skórnir komnir upp í hillu. Hún mun nú rýna í leikina á skjám landsmanna.
Katrín var hluti af liði Breiðabliks sem varð Íslandsmeistari í hitteð fyrra en meiddist í lokaleik mótsins. Hnémeiðsli hafa plagað hana síðan og var hún í raun aðeins leikmaður liðsins að nafninu til í fyrra. Hún er hætt að spila en verður nú sérfræðingur Bestu markanna í sumar. „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað núna en ég hef verið síðustu ár. Ég er að taka þetta frá öðrum vinkli núna. Ég er mjög spennt, mér líst mjög vel á liðin og það eru miklar breytingar á liðunum,“ segir Katrín. Klippa: Katrín ræðir nýtt hlutverk og komandi tímabil Breytingarnar hafa til að mynda orðið töluverðar á fyrrum félögum Katrínar í liði Breiðabliks sem er spáð titilvörn. Þjálfarinn Nik Chamberlain er horfinn á braut sem og margir lykilleikmenn. „Liðið lítur vel út þó það hafi orðið margar breytingar, á þjálfara og svona. Þetta eru allt góðar breytingar, finnst mér. Ég spái þeim titlinum. Ég held þær muni sannarlega skína í sumar, það er einhver tilfinning sem segir mér það,“ segir Katrín. Nýr veruleiki Valskvenna Jafnri baráttu er spáð milli liða á við FH, Þróttar, Stjörnunnar og Víkings - auk Vals þar fyrir neðan, sem er spáð sjötta sæti. Valskonur hafa verið nefndar í sömu andrá og Blikar í titilbaráttu síðustu ár, en á maður að venjast þessum nýja veruleika, að Val sé spáð um miðja deild? „Þetta er vissulega það. Þetta er leið sem Valur er að fara núna, það er meðvituð ákvörðun hjá félaginu. Þeir eru að skera niður og ætla að byggja upp á yngri leikmönnum. Auðvitað var þetta ekki gott fyrir alla og það voru smá leiðindi,“ „Og maður skilur það þegar öflugum reynslumiklum leikmönnum er hent í burtu og byggja upp annað lið í rauninni. En ég held þetta sé mjög jákvætt fyrir þessa ungu leikmenn sem eru að koma inn. Þær fá þarna platform og traust og vonandi fáum við að sjá sem mest af þessum ungu leikmönnum í sumar,“ segir Katrín. Nánar er rýnt í komandi tímabil í viðtalinu við Katrínu sem má sjá í heild í spilaranum. Fyrsti þáttur Bestu markanna er í kvöld þar sem farið verður yfir fyrstu umferð tímabilsins í Bestu deild kvenna. Bestu mörkin eru klukkan 18:00 á Sýn Sport Ísland 2.
Besta deild kvenna Bestu mörkin Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira