Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Jakob Bjarnar skrifar 24. apríl 2026 16:17 Eva Margrét er nýr framkvæmdastjóri ESJA leagal ehf og segir að þeir sem eru ekki í fylkingarbrjósti tæknibreytinga muni verða undir í samkeppninni. aðsend „Þær breytingar sem eru að verða á rekstri flestra fyrirtækja um þessar mundir með tilkomu gervigreindar eru á pari við þær breytingar sem urðu þegar Internetið kom fyrst til sögunnar,“ segir Eva Margrét Ásmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri ESJA Legal ehf.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu en þar er Eva Margrét spurð um hvernig hún hyggist láta til sín taka á nýjum vettvangi. „Þeir sem eru ekki í fylkingarbrjósti þessara breytinga munu verða undir í samkeppninni. Það eru ansi mörg ónýtt tækifæri á sviðum lögfræðinnar sem við ætlum að nýta okkur, viðskiptavinum stofunnar til heilla.“ Mun leiða umfangsmikla endurskipulagningu ESJA Legal er í grunninn fjölskyldufyrirtæki og var fyrirtækið stofnað af eiginmanni Evu, Ómari R. Valdimarssyni hæstaréttarlögmanni, árið 2009. Í tilkynningunni segir að Eva Margrét taki nú við taumunum hjá ESJA Legal ehf. en hún er löggildur fasteignasali. Hún kemur til fyrirtækisins með fjölbreytta reynslu í viðskiptum og markaðsmálum og hyggst nýta bakgrunn sinn til þess að innleiða frekari tæknilausnir í rekstri félagsins, til þess að bæta ferla, auka skilvirkni og styrkja tekjugrunninn enn frekar. Ómar hefur fulla trú á sinni konu, að hún muni leiða breytingar sem ríma við tæknibreytingar sem nú eru yfir og allt um kring.aðsend Eva Margrét mun leiða umfangsmikla endurskipulagningu á innri ferlum stofunnar, meðal annars með því að nýta forritunarhæfileika sína til þess að innleiða sjálfvirknivæðingu á lykilsviðum rekstrarins, meðal annars með liðsinni gervigreindar. Markmiðið að hennar sögn er að lækka rekstrarkostnað og breikka tekjugrunn fyrirtækisins með tæknilausnum. Engin betur til þess fallin að taka við ESJU Eins og áður sagði er Eva Margrét eiginkona Ómars R. Valdimarssonar lögmanns. Fyrstu árin snerist reksturinn aðallega um fjölmiðlaráðgjöf og almannatengsl en fókusinn var færður yfir á lögfræði árið 2013 sem er í dag ær og kýr stofunnar. Ómar mun halda áfram starfi sínu hjá stofunni sem hæstaréttarlögmaður og sinnir hann ráðgjöf og hagsmunagæslu bæði á sviðum stjórnsýslunnar og fyrir dómstólum. „Þær breytingar sem eru að verða á flestum sviðum samfélagsins um þessar mundir kalla á að við fáum manneskju í brúnna sem getur helgað sig þessu alfarið,“ segir Ómar og vísar til þeirra tækniframfara sem eru að breyta samfélagsmyndinni með umfangsmeiri hætti en lengi hefur sést. „Ef maður ætlar ekki að missa af þessari lest er eins gott að gæta þess að hvert skref fram á við sé úthugsað og tekið með faglegum og skipulögðum hætti. Engin mun geta gert það betur en Eva Margrét,“ segir Ómar sem hefur fulla trú á sinni konu.
Vistaskipti Lögmennska Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira