Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ Aron Guðmundsson skrifar 24. apríl 2026 11:02 Sigursteinn Arndal er þjálfari FH Anton Brink Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, á von á hörku úrsliteinvígi á móti Val í Olís deild karla í handbolta sem hefst í kvöld. Hann vonar að hátt upp í 1500 FH-ingar geri sér ferð á Hlíðarenda í kvöld á fyrsta leik liðanna. „
Þetta er búinn að vera mikill rússíbani,“ segir Sigursteinn í samtali við Val Pál Eiríksson, íþróttafréttamann Sýnar. „Við erum að koma út úr tveimur hörku einvígum. Bæði á móti Fram og svo núna á móti Haukum síðast og svo sem búinn að vera fiðringur allan tímann en mikil stemning líka. Ég finn hvað þetta hefur kveikt í félaginu hjá okkur. Það langar öllum að vera með. Þess vegna er maður fullur tilhlökkunar að mæta á Hlíðarenda með vonandi hátt upp í 1500 FH-inga með okkur.“ Klippa: Vill 1500 FH-inga á Hlíðarenda í kvöld Á meðan að FH þurfti fjóra leiki til þess að henda grönnum sínum í liði Hauka úr keppni, sópaði Valur liði KA út úr undanúrslitunum. Getur það skipt einhverju máli að þið í FH eruð að koma inn í þetta úrslitaeinvígi á ákveðnu tempói á meðan að Valsararnir hafa þurft að bíða eftir þessu? „Þú getur örugglega fundið kosti og galla við bæði. Þeir hafa geta lagt aukatíma í æfingar en ég er bara fyrst og síðasta ánægður með að við náðum að klára þetta einvígi á móti Haukum á föstudaginn síðastliðinn. Við fengum viku, náðum að nýta helgina í að slaka aðeins á og þessa viku höfum við nýtt vel í undirbúning. Við erum bara klárir.“ Leikirnir við Val verði hörku leikir. „Staðan í deildinni segir okkur það. Það var eitt stig sem skildi á milli þessara liða þar, þau unnu sitt hvorn leikinn og þeir enduðu báðir með fimm marka sigri í hvor áttina fyrir sig. Þetta eru jöfn lið, lítið sem mun bera á milli.“ Bæði lið hafa yfir að skipa öflugum ungum leikmönnum sem spila stóra rullu í sóknarleik liðanna. Gæti komið til þess að þessi ungstirni spili stóra rullu í því að tryggja liðum sínum Íslandsmeistaratitil? „Alveg pottþétt en ég vil líka meina að í báðum þessum liðum er gríðarleg reynsla. Mér finnst bæði lið vera með mjög skemmtilega blöndu. Það eru ungir og ferskir menn sem vilja mikið, svo ertu með hrikalega mikla reynslu inn á milli. Það er hægt að tala fyrir báðu.“ Hvar ræðst þetta einvígi? „Það er auðvelt að nefna varnarleikinn en ég vil þá eiginlega að segja að okkar varnarleikur þarf að byrja um leið og við missum boltann eða losum okkur við boltann á einhvern hátt því Valsararnir eru ofboðslega öflugir upp völlinn. Við þurfum að ná að loka fyrir það.“ Leikur eitt í úrslitaeinvígi Vals og FH í Olís deild karla í handbolta fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld og hefst klukkan hálf átta. Honum verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild karla FH Valur Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira