Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar 22. apríl 2026 14:00 Lýðheilsa snýst ekki aðeins um góða heilbrigðisþjónustu. Hún snýst um lífið sjálft, hvernig við búum, lifum, vinnum og tengjumst hvert öðru. Hún birtist í því hvort börn upplifa öryggi og stuðning, hvort ungmenni finna tilgang og tækifæri, hvort fullorðið fólk nær jafnvægi milli vinnu og einkalífs og hvort eldra fólk fær að lifa með reisn og virðingu. Í Hafnarfirði höfum við alla burði til að vera samfélag þar sem lýðheilsa er ekki aukaatriði heldur leiðarljós í öllu sem við gerum. Við höfum nú þegar byggt upp sterkt samfélag en það er mikilvægt að sofna ekki á verðinum. Við þurfum að halda áfram að gera gott enn betra og það er einmitt það sem við í Framsókn ætlum að gera. Lýðheilsa er ekki lúxusvara, heldur lykillinn að góðum lífsgæðum Lýðheilsa er ekki lúxusvara, hún er forsenda þess að við öll höfum tækifæri til að lifa góðu lífi. Hún snertir okkur á öllum æviskeiðum: Þegar við erum börn, ungmenni, fullorðið fólk og þegar við eldumst. Með markvissum forvörnum, snemmtækri íhlutun og aðgengi að stuðningi og félagslegu starfi sköpum við samfélag þar sem fólk getur vaxið, dafnað og fundið sitt jafnvægi í lífinu. Það er mikilvægt að hlúa vel að börnum og ungmennum. Við ætlum að leggja áherlsu á að tryggja að þjónusta við börn og ungmenni sé samfelld og fyrirsjáanleg. Það felur í sér að brúa bilið frá fæðingarorlofi þar til barn kemst í leikskóla, tryggja jafnt aðgengi að tómstundum með hækkun frístundastyrks og með öflugu forvarnarstarfi. Þetta snýst um að öll börn og ungmenni fái raunveruleg tækifæri til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu og blómstra. Heilbrigð samfélög byggja á góðum tengslum Einangrun og félagsleg einsemd eru meðal stærstu áskorana nútímans. Þess vegna skiptir máli að byggja samfélag þar sem félagsleg tengsl skipta máli í gegnum skóla, íþróttir, menningu og daglegt líf. Það er ekki síður mikilvægt að horfa til félagslegra tengsla eldra fólks. Með auknum lífaldri fylgja tækifæri en einnig áskoranir, þar sem félagsleg tengsl geta rofnað og einsemd aukist. Rannsóknir sýna að virk þátttaka, samskipti og tilgangsríkt daglegt líf hafa bein áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu. Við viljum því skapa aðstæður þar sem eldra fólk hefur raunveruleg tækifæri til þátttöku, með bættu aðgengi að frístunda- og tómstundastarfi, markvissri heilsueflingu og þjónustu sem styður við sjálfstætt og virkt líf. Einnig skiptir máli að efla samfélagsrými þar sem kynslóðir mætast og tengjast, því sterk tengsl milli fólks á öllum aldri eru ein af grunnstoðum heilbrigðs samfélags. Við viljum efla félagslega innviði bæjarins með því að styðja fjölbreytt íþrótta- og frístundastarf, styrkja félagsmiðstöðvar og bæta aðgengi að menningu og útivist. Uppbygging göngu- og hjólastíga, grænna svæða og aðstöðu til útivistar er ekki aðeins skipulagsmál – það er stórt lýðheilsumál. Geðheilsa er stór hluti af lýðheilsu Geðheilsa er órjúfanlegur hluti af lýðheilsu. Við viljum tryggja að fólk sem glímir við geðrænan vanda fái samfellda þjónustu, öruggt húsnæði og raunverulegan stuðning. Það er jafnframt mikilvægt að horfa til forvarna: að grípa fyrr inn í, styðja við einstaklinga áður en vandinn verður alvarlegur og skapa samfélag þar sem það er eðlilegt að leita sér hjálpar. Við viljum efla þjónustu við þá sem búa við félagslega einangrun og styrkja úrræði sem styðja við andlega heilsu íbúa. Öll erum við mikilvægur partur af samfélaginu Sterk lýðheilsa byggir á jöfnum tækifærum og raunverulegu aðgengi fyrir alla. Það skiptir máli að tryggja að fatlað fólk hafi aðgengi að þjónustu og húsnæði sem hentar ólíkum þörfum, að eldra fólk hafi raunveruleg tækifæri til virkni og þátttöku og að allir finni að þeir eigi heima í samfélaginu. Við þurfum líka að huga sérstaklega að jaðarhópum sem upplifa oft hindranir í daglegu lífi. Þar má nefna hinsegin fólk, innflytjendur og fólk með veikari félags- og efnahagslega stöðu. Aðgengi að þjónustu, öryggi, virðing og þátttaka í samfélaginu eru grundvallarþættir lýðheilsu fyrir alla. Við ætlum að halda áfram uppbyggingu fjölbreyttra íbúðaúrræða, bæta aðgengi að upplýsingum og þjónustu og styðja við sjálfstætt líf með markvissum hætti – þannig að enginn sitji eftir. Þetta snýst um Hafnarfjörð Lýðheilsa er ekki verkefni sem hefur upphaf og endi né er hún á ábyrgð eins sviðs eða einnar stofnunar. Hún er sameiginlegt verkefni okkar allra – bæjarins, skóla, fjölskyldna, atvinnulífs og samfélagsins í heild. Þegar við setjum fólk í fyrsta sæti, byggjum á traustum grunni og tökum markviss skref í átt að betra samfélagi, þá verður árangurinn ekki aðeins mældur í tölum heldur í lífsgæðum. Hafnarfjörður á að vera staður þar sem fólk getur lifað góðu lífi – ekki bara lifa af. Til að ná góðum árangri er mikilvægt að eiga virkt samtal við bæjarbúa, hlusta og skapa aðstæður sem þjóna fólkinu – ekki kerfi sem fólk þarf að aðlaga sig að. Þetta snýst um fólkið Höfundur er mannauðsráðgjafi og skipar annað sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar