Hættum að tala um sameiningu! Liv Aase Skarstad skrifar 21. apríl 2026 15:31 Umræðan um samskipti Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar hefur verið áberandi undanfarið, og það er í sjálfu sér ekkert nema eðlilegt. Þegar nágrannasveitarfélög ræða saman – eða jafnvel deila – þá fylgir því athygli. Það sem hefur valdið mér meiri áhyggjum en margt annað er sá tónn sem umræðan hefur tekið á síðustu misserum, því hann hefur oftar en ekki verið þess eðlis að hann byggir ekki upp traust heldur grefur undan því. Það er ekki lítið mál. Á síðasta ári hefur umræðan ítrekað farið í farveg þar sem tortryggni fær að vaxa, þar sem dregnar eru upp skýrar línur á milli „okkar“ og „ykkar“ og þar sem fókusinn festist í því hver eigi að borga hvað, hver standi betur fjárhagslega og hver eigi rétt á hverju. Slík umræða er ekki bara þreytandi – hún er beinlínis skaðleg þegar kemur að því að byggja upp samstarf til framtíðar. Hún dregur okkur niður í skotgrafir þar sem við hættum að hlusta og förum frekar að verja stöður. Mín eigin reynsla af samstarfi við Hvalfjarðarsveit er allt önnur en þessi mynd gefur til kynna. Á síðustu fjórum árum hef ég átt regluleg og góð samskipti við kjörna fulltrúa sveitarfélagsins, bæði í gegnum stjórn Dvalarheimilisins Höfða og á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Þar hef ég setið fundi, tekið þátt í umræðum og unnið að sameiginlegum málum með fólki sem ég hef kynnst sem faglegu, yfirveguðu og einlægu í sínum störfum. Þetta eru ekki nafnlaus „hagsmunasamtök“ eða fjarlæg stjórnsýsla – þetta er fólk. Fólk sem ber ábyrgð gagnvart sínum íbúum, alveg eins og við gerum á Akranesi. Fólk sem vill taka góðar ákvarðanir, byggja upp sitt samfélag og standa vörð um lífsgæði þeirra sem þar búa. Það er í rauninni það sem gerir þessa stöðu svo sérstaka. Því þegar fólk með sama markmið og sömu grunnábyrgð nær ekki að tala saman án þess að umræðan fari í skotgrafir, þá vitum við að við þurfum að staldra við. Sveitarfélög eru nefnilega ekki fyrirtæki í samkeppni. Við erum ekki að berjast um viðskiptavini eða markaðshlutdeild. Verkefnin okkar eru í grunninn þau sömu – að þjónusta íbúana okkar, tryggja velferð þeirra og byggja upp samfélag sem virkar. Og það fólk sem við þjónustum lifir ekki lífi sínu innan skýrt afmarkaðra sveitarfélagamarka. Það fer á milli, nýtir þjónustu á báðum stöðum og upplifir þetta svæði sem eina heild. Þess vegna verður umræðan svo fljótt skökk þegar hún fer að snúast um andstæður. Í þeirri umræðu hefur líka stundum verið vísað til sameiningar sveitarfélaga, eins og hún sé einhvers konar lausn á þeim ágreiningi sem upp hefur komið. En sameining er ekki töfralausn. Hún leysir ekki samskiptavanda ef hann er til staðar – hún getur allt eins flutt hann með sér yfir í nýtt og stærra kerfi. Hættum því bara að tala um sameiningu! Við þurfum að staldra aðeins við og spyrja okkur hvort við séum mögulega að byrja á röngum enda. Áður en hægt er að fara ræða stórar kerfisbreytingar þurfum við að ná að mastera það sem er miklu einfaldara, en um leið miklu mikilvægara: Að geta átt eðlilegt, faglegt og uppbyggilegt samtal, án tortryggni og án skotgrafa. Það er áskorunin sem við stöndum frammi fyrir í dag og hún er grundvöllurinn að öllu hinu. Höfundur er bæjarfulltrúi Framsóknar og frjálsra og skipar annað sæti listans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akranes Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar