Heimur án höggdeyfis Gunnar Salvarsson skrifar 21. apríl 2026 13:00 Það blasir líkast til við flestum að Sameinuðu þjóðirnar hafa veikst. Réttara væri þó að segja að kerfisbundið hafi verið grafið undan samtökunum, ekki síst af hálfu núverandi valdhafa í Bandaríkjunum. Þótt þessi risavaxna alþjóðastofnun standi á hálfgerðum brauðfótum væri heimurinn að öllum líkindum verri án hennar, ekki síst fyrir smáríki eins og Ísland, sem myndu missa mikilvægan farveg til áhrifa. Sameinuðu þjóðirnar eru eins og höggdeyfir eða fjöðrunarkerfi í bíl. Þær koma ekki í veg fyrir árekstra eða holur í vegum, en milda höggin. Án þeirra væri alþjóðakerfið án dempara og stórveldin færu fram af enn meiri yfirgangi. Skammtímahagsmunir myndu ráða ferð fremur en alþjóðleg viðmið. Þegar við gagnrýnum áhrifaleysi Sameinuðu þjóðanna verðum við jafnframt að velta upp spurningunni hvernig heimurinn væri án þeirra. Ég er til dæmis sannfærður um að á sviði mannúðarmála yrðu áhrifin hrikaleg. Verkefni sem í dag eru samhæfð á vegum samtakanna – neyðaraðstoð, bólusetningar og matvælaaðstoð – yrðu sundurlausari og ófyrirsjáanlegri. Stuðningur myndi ekki hverfa, en aðstoðin bærist hægar og yrði háðari pólitískum vilja hverju sinni. Annað mikilvægt hlutverk samtakanna, sem oft er vanmetið, er að setja viðmið og safna gögnum sem móta skilning á því hvað telst ásættanlegt í alþjóðasamfélaginu. Það sést til dæmis í mannréttindaskýrslum, viðbrögðum við hungursneyð og sameiginlegum mælikvörðum í loftslags- og heilbrigðismálum. Án þessa ramma yrði auðveldara fyrir ríki að afneita brotum, fresta aðgerðum eða velja hvort og hvenær þau bregðast við. Heimurinn án Sameinuðu þjóðanna yrði því ófyrirsjáanlegri, harðari og líklega óréttlátari, ekki síst fyrir þau ríki og það fólk sem hvað minnst má sín í alþjóðakerfinu. Tilvistarkreppa Sameinuðu þjóðanna kristallast í öryggisráðinu. Þar fara fimm ríki – Bandaríkin, Rússland, Kína, Bretland og Frakkland – með neitunarvald sem gerir þeim kleift að stöðva allar afgerandi ákvarðanir. Fyrirkomulagið var upphaflega hugsað sem forsenda þátttöku stórveldanna. Í dag er það helsta ástæða þess að samtökin verða áhrifalaus þegar hagsmunir stórveldanna rekast á. Líkur á umbótum eru litlar sem engar. Þær krefðust samþykkis sömu ríkja sem þyrftu þá að afsala sér eigin forréttindum. Það gerist ekki. Þessi staða minnir óþægilega á umræðu sem þekkist vel hér heima um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Ítrekað hefur verið bent á kosti sameiningar, aukna hagkvæmni, skýrari stjórnsýslu og milljarðasparnað sem nýta mætti í þágu borgaranna. En til að slíkt gengi eftir þyrftu stjórnmálaflokkar og kjörnir fulltrúar að afsala sér völdum og áhrifum. Sama lögmál gildir því: umbætur eru aðeins mögulegar ef þeir sem fara með völdin eru tilbúnir að gefa eitthvað eftir. Og það gerist sjaldan. Í þessu felst ákveðin þversögn sem nær lengra en til skipulags Sameinuðu þjóðanna eða sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórnmálaflokkar eiga að vera burðarás lýðræðislegra kerfa og farvegur vilja almennings. En samtímis eru þeir stofnanir með eigin hagsmuni sem leitast við að viðhalda stöðu sinni, áhrifum og skipulagi, og verja sig með kjafti og klóm. Þegar svo háttar til gerist það sérkennilega: að þeir sem eiga að knýja fram breytingar verða helsta hindrunin í vegi þeirra. Hagsmunir kerfisins vega þyngra en hagsmunir borgaranna. Það er fjarska dapurleg staðreynd. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar