Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Freyja Þórisdóttir skrifar 21. apríl 2026 13:00 Fangelsið á Hólmsheiði opnaði þann 10. júní 2016 en það er gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga og aðstöðu fyrir afplánun styttri fangelsisrefsinga og vararefsinga. Vísir/Vilhelm Neikvæð viðhorf í garð fólks sem hefur brotið af sér eru á pari við þau neikvæðu viðhorf sem fram koma gagnvart þeim sem stríða við alvarlegan geðrænan vanda. Margir vilja halda ákveðinni fjarlægð frá fólki sem hefur afplánað fangelsisdóm og þykir eðlilegt að það sé útilokað frá ýmsum sviðum samfélagsins.
Þetta og fleira kom fram á fundi sem Geðhjálp stóð fyrir á Kjarvalsstöðum í dag, 21. apríl, þar sem farið var yfir niðurstöður könnunar um fordóma gagnvart einstaklingum sem hafa brotið af sér. Könnunin leiddi í ljós talsvert neikvæð viðhorf hérlendis í garð einstaklinga sem afplánað hafa fangelsisdóm. Fundurinn er hluti af viðburðaröð um fordóma og geðheilbrigði sem ber yfirskriftina Frá skömm yfir í skilning. Könnunin er svo hluti af fordómarannsókn sem var framkvæmd á síðasta ári og nær til fordóma gagnvart einstaklingum með geðrænan vanda, fíkn og/eða þeim sem hafa framið afbrot. Jón Gunnar Bernburg er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.vísir/vilhelm Rannsóknin var unnin af prófessorunum Sigrúnu Ólafsdóttur, Jóni Gunnari Bernburg og Kára Kristinssyni og fjármögnuð af Geðhjálp. Innflytjendastaða hafi lítil sem engin áhrif Svarendur höfðu sterka tilhneigingu til þess að vilja halda félagslegri fjarlægð frá einstaklingum sem höfðu lokið afplánun, þeir höfðu um þá neikvæða fordóma og töldu að þá ætti að útiloka frá ýmis konar þátttöku í samfélaginu, þar á meðal á atvinnumarkaði. Þá höfðu svarendur væntingar um að þeir sem lokið hefðu afplánun mættu einmitt búast við útilokun af þessu tagi. Það kom þó rannsakendum á óvart að innflytjendastaða hafði lítil sem engin áhrif á neikvæð viðhorf í garð einstaklinga sem lokið hafa afplánun í fangelsi. Könnunin skoðaði viðhorf í garð fleiri hópa. Í heild má segja að neikvæð viðhorf í garð þessa hóps séu á pari við þau neikvæðu viðhorf sem fram koma gagnvart þeim sem stríða við alvarlegan geðrænan vanda.
Fangelsismál Innflytjendamál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira