Blár, rauður, gulur og C+ Jón Pétur Zimsen skrifar 21. apríl 2026 08:46 Töluvert hefur verið rætt um matskerfi grunnskólanna sl. daga. Lítill hópur forystu kennara og nokkrir kennarar berjast á móti þeim breytingum sem ráðherra vill koma á. Matskerfi grunnskólans hefur verið gagnrýnt harkalega af öllum í samfélaginu drepum fæti niður í rannsókn sem gerð var á vegum menntamálaráðuneytisins: ,,Foreldrum, kennurum, nemendum og skólastjórnendum, öllum þessum hópum þykja helstu þættir aðalnámskrárinnar illskiljanlegir, of háfleygir og of undirorpnir túlkun hvers og eins“ ,,Mikið ósamræmi er í því hvernig aðalatriði námskrárinnar, til að mynda hæfniviðmið, matsviðmið og námsmatskerfi, eru notuð í grunnskólum landsins og ljóst að helstu markmið aðalnámskrár grunnskóla frá 2011 og 2013 hafa ekki náðst.“ Hringir það engum bjöllum að það hafi tekið kennara, fagmennina,13 ár að komast til botns í matskerfi grunnskólabarna, 13 ár? Á það að taka foreldra 10 ára skólagöngu barns síns að átta sig á því hvar barnið stendur í námi? Afar lítil eftirspurn er eftir þessu matskerfi og annarri orðasúpu aðalnámskrár innan samfélagsins og trúverðugleiki þess svo gott sem enginn. Það hefur verið ljóst árum saman. Námsárangur hefur verið í frjálsu falli. Þessi tilraun með bókstafakerfi og aðalnámskrá hefur runnið sitt skeið, þessu þarf öllu að skipta út. Það sjá svo gott sem allir í samfélaginu og vonandi kennaraforystan líka. Íslensk börn eiga það skilið að það kerfi sem þau eru metin eftir sé skiljanlegt og uppbyggilegt, horfumst í augu við það. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Skóla- og menntamál Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Töluvert hefur verið rætt um matskerfi grunnskólanna sl. daga. Lítill hópur forystu kennara og nokkrir kennarar berjast á móti þeim breytingum sem ráðherra vill koma á. Matskerfi grunnskólans hefur verið gagnrýnt harkalega af öllum í samfélaginu drepum fæti niður í rannsókn sem gerð var á vegum menntamálaráðuneytisins: ,,Foreldrum, kennurum, nemendum og skólastjórnendum, öllum þessum hópum þykja helstu þættir aðalnámskrárinnar illskiljanlegir, of háfleygir og of undirorpnir túlkun hvers og eins“ ,,Mikið ósamræmi er í því hvernig aðalatriði námskrárinnar, til að mynda hæfniviðmið, matsviðmið og námsmatskerfi, eru notuð í grunnskólum landsins og ljóst að helstu markmið aðalnámskrár grunnskóla frá 2011 og 2013 hafa ekki náðst.“ Hringir það engum bjöllum að það hafi tekið kennara, fagmennina,13 ár að komast til botns í matskerfi grunnskólabarna, 13 ár? Á það að taka foreldra 10 ára skólagöngu barns síns að átta sig á því hvar barnið stendur í námi? Afar lítil eftirspurn er eftir þessu matskerfi og annarri orðasúpu aðalnámskrár innan samfélagsins og trúverðugleiki þess svo gott sem enginn. Það hefur verið ljóst árum saman. Námsárangur hefur verið í frjálsu falli. Þessi tilraun með bókstafakerfi og aðalnámskrá hefur runnið sitt skeið, þessu þarf öllu að skipta út. Það sjá svo gott sem allir í samfélaginu og vonandi kennaraforystan líka. Íslensk börn eiga það skilið að það kerfi sem þau eru metin eftir sé skiljanlegt og uppbyggilegt, horfumst í augu við það. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri.
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar