Sterkur og skapandi Garðabær Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir skrifar 20. apríl 2026 07:30 Garðabær hefur í dag alla burði til þess að vera leiðandi sveitarfélag; staður þar sem gott er að búa, starfa og skapa. Til þess að svo megi verða þurfum við hins vegar að leggja áherslu á gagnsæi í rekstri með því að veita réttar upplýsingar um stöðu og fjármál sveitarfélagsins, tryggja Garðbæingum aðgang að framúrskarandi þjónustu og sameinast um skýra framtíðarsýn sem styður við bæði íbúa og atvinnulíf. En þá er spurningin: hvernig gerum við það? Gagnsæi og ábyrgur rekstur Traust er grunnurinn að góðu samfélagi. Þess vegna viljum við setja bókhald bæjarins á netið og gera það aðgengilegt öllum íbúum. Garðbæingar eiga að geta séð með skýrum hætti hvernig fjármunum sveitarfélagsins er varið, hvert þeir fara og hvaða verkefni eru framundan. Þetta er lykilatriði í gagnsæi og virku eftirliti þar sem hlutverk bæjarstjórnar á að vera að veita réttar upplýsingar í rauntíma. Samfylkingin í Garðabæ leggur ríka áherslu á ábyrgan rekstur þar sem tekjur sveitarfélagsins skila sér fyrst og fremst í öflugri grunnþjónustu. Með því að draga úr óþarfa kostnaði og einfalda reksturinn getum við tryggt að fjármunir nýtist þar sem þeirra er mest þörf. Jafnframt viljum við auka aðkomu íbúa að ákvarðanatöku því rödd Garðbæinga á að skipta máli – ekki bara í orði heldur einnig á borði. Frá skjánum í sköpun Ég held að við getum öll verið sammála um það að vilja ná börnum og ungmennum frá skjánum og í sköpun. Ein helsta áskorun ungs fólks í dag er andleg heilsa og Samfylkingin í Garðabæ vill leggja sitt af mörkum til þess að gefa börnunum okkar tækifæri á að styrkja félagsleg tengsl, efla sköpunarhæfileika þeirra og leyfa þeim að sjá hugmyndir sínar verða að veruleika. Framtíðin kallar á sköpun, nýsköpun og hugrekki til þess að prófa nýjar leiðir. Menningar- og nýsköpunarhús í Garðabæ er eitt af því sem Samfylkingin leggur áherslu á að verði að veruleika. Bærinn okkar hefur í gegnum tíðina alið af sér framúrskarandi listafólk og skapandi einstaklinga og með því að hlúa að grasrótinni og skapa aðstöðu fyrir sköpun getum við eflt þetta umhverfi enn frekar. Sameiginleg framtíðarsýn Í dag stöndum við Garðbæingar á tímamótum þar sem við getum valið að gera gott samfélag enn betra. Við höfum val um að breyta til - hrista upp í hlutunum. Við höfum val um að byggja upp sterkt og skapandi bæjarfélag með ábyrgum rekstri, skilvirkri þjónustu og hafa metnað fyrir vellíðan og öryggi unga fólksins okkar. Þann 16. maí næstkomandi geta Garðbæingar kosið nýja forystu – og þá verða tækifærin til að gera Garðabæ enn betri svo miklu fleiri. Við lofum því. Höfundur skipar 2. sætið á lista Samfylkingarinnar í Garðabæ fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar