Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. apríl 2026 07:49 Starmer hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að skipa Mandelson sendiherra í Washington. Getty Utanríkisráðuneyti Bretlands ákvað að veita Peter Mandelson öryggisheimildir, þrátt fyrir að öryggisyfirvöld hefðu komist að þeirri niðurstöðu að Mandelson uppfyllti ekki skilyrði. Ákvörðunin virðist hafa verið tekin vegna þess að forsætisráðherrann Keir Starmer hafði þegar tilkynnt að Mandelson yrði sendiherra Breta í Washington.
Frá þessu greinir Guardian en málið er allt hið vandræðalegasta fyrir Starmer, sem hefur neitað að hafa vitað að Mandelson hefði þegar verið neitað um öryggisheimild. Mandelson er fyrrverandi þingmaður og ráðherra Verkamannaflokksins. Hann var gerður að sendiherra í fyrra en var látinn víkja eftir að í ljós kom að hann hefði verið áfram í samskiptum við Jeffrey Epstein eftir að síðarnefndi var dæmdur fyrir kynferðisbrot árið 2008. Þá kom síðar í ljós að hann hefði deilt viðkvæmum upplýsingum með Epstein. Mandelson sagði sig í kjölfarið úr Verkamannaflokknum og Lávarðadeildinni. Rannsókn Guardian leiddi í ljós að Mandelson var neitað um öryggisheimildir í janúar 2025, eftir umfangsmikla og ítarlega bakgrunnsrannsókn. Þetta var ekki gert opinbert þrátt fyrir mikla umfjöllun um tengsl hans við Epstein og gagnrýni á ákvörðun Starmer að gera hann að sendiherra. Skrifstofa forsætisráðherra sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fréttaflutningur Guardian var staðfestur. Starmer virðist ekki hafa verið uppýstur um niðurstöður bakgrunnsrannsóknarinnar á Mandelson og heimildarmenn Guardian segja hann ævareiðan vegna málsins. Starmer hefur enda sætt harðri gagnrýni úr ýmsum áttum síðustu misseri, meðal annars vegna Mandelson, stöðu efnahagsmála heima fyrir og framgöngu hans í tengslum við árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran. Málið gæti reynst forsætisráðherranum afar erfitt en Guardian hefur einnig greint frá því að háttsettir embættismenn hafi rætt það sín á milli að halda því frá þinginu að Mandelson hafi upphaflega verið neitað um öryggisheimild. Þingið hafði áður samþykkt þingsályktunartillögu um að öll gögn er vörðuðu skipun Mandelson sem sendiherra yrðu gerð opinber.
Bretland Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira