Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. apríl 2026 14:53 Pete Hegseth svaraði spurningum um Íransstríðið í dag. AP Photo/Kevin Wolf Bandaríkin munu halda uppi herkví við Hormússund eins lengi og þörf krefur að sögn Pete Hegseth varnarmálaráðherra landsins. Hann segir Bandaríkin nú undirbúa sig undir möguleikann á frekari átökum, Íranir hafi val um að ljúka átökum með því að velja auðveldu leiðina ellegar verði þeim gert að fara erfiðu leiðina. Hann hótaði árásum á orkuinnviði landsins.
Herkví Bandaríkjanna við sundið hófst fyrr í vikunni en bandarísk herskip meina írönskum flutningaskipum með henni að sigla í gegnum sundið. Íranir hafa beitt lokunum á sundinu fyrir sig síðan árásir Bandaríkjanna og Ísraela hófust gegn landinu þann 28. febrúar með tilheyrandi skaða fyrir efnahagskerfi heimsins. Fimmtungur allrar olíu sem framleidd er í heiminum er flutt í gegnum sundið. Tímabundið vopnahlé er nú í gildi. New York Times hefur eftir varnarmálaráðherra Bandaríkjann að herkvínni verði viðhaldið eins lengi og þörf sé á. Hegseth beindi orðum sínum til íranskra stjórnvalda á blaðamannafundi nú fyrir skemmstu og sagði að hernaðarmáttur Bandaríkjanna væri einungis að aukast. Hvatti hann Írana að samningaborðinu og til að gangast við skilmálum Bandaríkjanna, sem meðal annars hafa farið fram á að Íranir hætti með öllu auðgun úrans. Það hafa Íranir ekki getað fallist á. Þá gerði Hegseth á fundinum lítið úr varnarmætti Írana. Sagði þá ekki getað endurbyggt flugskeytakerfi sitt eftir árásir Bandaríkjanna. „Þið getið fært hluti til en þið getið ekki endurbyggt þetta. Við erum klárir í slaginn. Þið hafið ekki stjórn á neinu.“
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Íran Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Sjá meira