Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Kristján Már Unnarsson skrifar 15. apríl 2026 22:10 Fyrsta flugvélin lenti í gær á nýja flugvellinum í Qaqortoq. Greenland Airports Grænlendingar fagna á morgun opnun nýs flugvallar við bæinn Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Samtímis verður flugvellinum í Narsarsuaq lokað en hann hefur í gegnum áratugina komið mikið við sögu íslenskra flugmála.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá myndir teknar úr flugmælingavél Isavia en íslenskir flugprófanamenn hafa í vetur unnið að því að taka út flugleiðsögutæki og aðflugsferla fyrir nýju flugbrautina við Qaqortoq, sem er 1.500 metra löng. Séð yfir nýja flugvöllinn úr flugmælingavél Isavia.Isavia Samhliða hafa flugvallayfirvöld á Grænlandi undirbúið opnun vallarins með þjálfun starfsmanna. Meðal annars hafa verið haldnar æfingar í afgreiðslu flugfarþega og neyðarviðbrögðum slökkviliðs, sjúkraflutningamanna og lögreglu. Nýja flugstöðin í Qaqortoq er hin veglegasta bygging.Greenland Airports Þótt formleg opnun sé á morgun lenti fyrsta flugvélin í gær en það var Dash 8 Q200-vél frá Air Greenland. Þetta telst þó tilraunalending en engu að síður fjölmenntu bæjarbúar til að fylgjast með enda hafa þeir lengi beðið eftir því að fá flugvöll. Qaqortoq-flugvöllur er í hinni fornu Eystribyggð eins og Narsarsuaq-flugvöllur, sem er skammt frá Brattahlíð, landnámsjörð Eiríks rauða. Nýi völlurinn við Qaqortoq mun taka yfir hlutverk Narsarsuaq sem alþjóðaflugvöllur og aðalflugvöllur Suður-Grænlands. Um leið verður Narsarsuaq-velli lokað en hann er sá flugvöllur Grænlands sem Íslendingar hafa tengst hvað mest í gegnum tíðina. Meðal starfsmanna hans er Ingibjörg Gísladóttir. „Það verður mikill söknuður af þessum flugvelli, það er alveg rétt,“ sagði Ingibjörg í fyrravetur, og ekki síst vegna tengsla vallarins við Ísland. „Og ég held að mögulega fyrsta flug frá Íslandi til Grænlands hafi verið hingað. Þannig að þetta er löng saga sem er hingað,“ sagði Ingibjörg en þetta fyrsta flug íslensks flugfélags vegna verkefnis á Grænlandi gæti hafa verið árið 1949, eða fyrir 77 árum. Tvær DC 6B-flugvélar Flugfélags Íslands á flugvellinum í Narsarsuaq árið 1968.Snorri Snorrason Á safni í Narsarsuaq má fræðast um fjölbreytt verkefni sem Íslendingar sinntu þar, eins og ískönnunarflugi og áætlunarflugi. Þá hefur völlurinn gjarnan verið síðasti viðkomustaður smærri flugvéla á leið frá Ameríku til Íslands. Séð yfir flughlaðið og helstu byggingar.Greenland Airports Um leið er nýja flugvellinum fagnað í Qaqortoq. Þar er málmleitarfélagið Amaroq með starfsstöð og svona lýsti forstjórinn Eldur Ólafsson breytingunni í fyrra: Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals, í viðtali í bænum Qaqortoq.Baldur Kristjánsson „Þessi nýi flugvöllur mun stytta tímann fyrir starfsfólkið okkar að koma inn. Hann mun stytta tímann til að koma fólki inn og út. Það á að vera auðveldara að lenda þarna, miðað við þar sem flugvöllurinn er núna. Það verður hægt að koma stærri flugvélum inn. Þannig að þetta mun hafa alveg gígantísk áhrif. Ekki bara fyrir okkar starfsemi heldur alla starfsemi á Suður-Grænlandi, túrisma og annað,“ sagði Eldur. Ingibjörg Gísladóttir, starfsmaður flugvallarins í Narsarsuaq. Hún starfar næstu tvo mánuði við þjálfun starfsmanna á Qaqortoq-flugvelli.KMU
Grænland Flugþjóðin Fréttir af flugi Icelandair Amaroq Minerals Tengdar fréttir Flugið er líflína milli byggða Grænlands Grænlendingar búa við eitt flóknasta og dýrasta samgöngukerfi allra þjóða. Þeir treysta mest á flugsamgöngur til að komast á milli byggða þar sem landið er án vegakerfis. 19. mars 2026 07:07 Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11 Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Flugvöllurinn í Narsarsuaq, sem lengi þjónaði sem helsta tenging milli Grænlands og Íslands, heyrir brátt sögunni til. Íslendingur sem starfar við flugvöllinn býst við að þorpið við völlinn muni að mestu leggjast í eyði. 4. janúar 2025 22:11 Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands. 16. október 2023 22:11 Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Nýr flugvöllur sem verið er að gera við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands, mun hafa gríðarleg áhrif á atvinnulíf og samgöngur í landshlutanum. Hann mun einnig gagnast Íslendingum sem eru með starfsemi á svæðinu. 22. desember 2024 22:21 Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Sjá meira
Flugið er líflína milli byggða Grænlands Grænlendingar búa við eitt flóknasta og dýrasta samgöngukerfi allra þjóða. Þeir treysta mest á flugsamgöngur til að komast á milli byggða þar sem landið er án vegakerfis. 19. mars 2026 07:07
Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11
Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Flugvöllurinn í Narsarsuaq, sem lengi þjónaði sem helsta tenging milli Grænlands og Íslands, heyrir brátt sögunni til. Íslendingur sem starfar við flugvöllinn býst við að þorpið við völlinn muni að mestu leggjast í eyði. 4. janúar 2025 22:11
Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands. 16. október 2023 22:11
Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Nýr flugvöllur sem verið er að gera við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands, mun hafa gríðarleg áhrif á atvinnulíf og samgöngur í landshlutanum. Hann mun einnig gagnast Íslendingum sem eru með starfsemi á svæðinu. 22. desember 2024 22:21