Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir, Kristín Lilja Thorlacius og María Arnardóttir skrifa 15. apríl 2026 06:31 Umræða um læsi hefur verið áberandi upp á síðkastið, ekki síst vegna þess að margir hafa áhyggjur af dvínandi læsi barna. Í þeirri umræðu er gjarnan lögð áhersla á lestur og ritun, en læsi er í raun mun víðara hugtak. Það felur einnig í sér upplýsingalæsi, myndlæsi, tilfinningalæsi og hæfni til að skilja samhengi, blæbrigði og merkingu. Í myndrænni veröld hraðra hnattrænna breytinga skiptir þessi hæfni sífellt meira máli. Flæði upplýsinga hefur aukist og framsetning þeirra er oft óreiðukennd. Þá er brýnt að búa yfir gagnrýnni hugsun og skilningi til að greina á milli áreiðanlegra, gagnlegra upplýsinga og falsfrétta eða villandi upplýsinga. Þar gegna listir lykilhlutverki því í gegnum listir lærum við að skynja, túlka og setja okkur í spor annarra. Þær efla samkennd, sjálfstjáningu og skapa rými fyrir ígrundun. Þess vegna eru listir ekki einungis menningarmál heldur einnig lýðheilsumál. Þátttaka í skapandi starfi eykur vellíðan, styrkir tengsl og hefur bein áhrif á andlega heilsu. Til að þetta verði að veruleika þarf bæði að tryggja almenningi aðgengi að listum og styðja við listafólk. Samfélagið þarf að bjóða upp á vettvang fyrir skapandi starf, í námi, frístundum og opnum rýmum. Einnig þarf að skapa listafólki skilyrði til að starfa við list sína en þar liggur grunnurinn að lifandi menningu. Menningar- og samfélagshús gegna lykilhlutverki Menningar- og samfélagshús gegna hér lykilhlutverki. Þau eru brú milli listafólks og íbúa, vettvangur fyrir þátttöku, samtal og sköpun. Í Hveragerði gegnir bókasafnið þessu hlutverki. Bókasöfn eru hlutlausir samkomustaðir sem við öll getum heimsótt án skuldbindinga eða þrýstings frá utanaðkomandi aðilum. Bókasafnið í Hveragerði er í raun eina núverandi menningarhúsið sem rekið er af sveitarfélaginu og því er mikilvægt að hlúa að því og efla á allan hátt. Þessi sýn endurspeglast jafnframt í hugmynd S-listans um nýtt samfélagsgróðurhús sem nýlega var kynnt í grein. Slík rými styðja beint við þá framtíðarsýn sem bæjarfélagið hefur sett sér; samfélag þar sem heilsa, vellíðan og lifandi menning eru í forgrunni. Með markvissum stuðningi við listir og menningu styrkjum við ekki aðeins sköpunarkraftinn, heldur einnig andlega heilsu og samkennd í samfélaginu. Þar liggur raunverulegt gildi listarinnar sem er ein af grunnstoðum í lýðheilsu og lífsgæðum okkar allra. Höfundar eru frambjóðendur á S-listanum í Hveragerði (listi Samfylkingar og óflokksbundinna) Árný Fjóla Ásmundsdóttir er í 7. sæti Kristín Lilja Thorlacius er í 9. sæti María Arnardóttir er í 13. sæti Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar