Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Árni Sæberg skrifar 14. apríl 2026 10:50 Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Vísir/lýður valberg Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum, sem lækka mun virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið, felur í sér heimild atvinnuvegaráðherra til ákvarða hámarksverð á eldsneyti eða hámarksálagningu. Þá felur frumvarpið í sér heimild til álagningar stjórnvaldssekta skili virðisaukaskattslækkun sér ekki til viðskiptavina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu um frumvarpið, sem var boðað á föstudag og útbýtt utan þingfundar klukkan 17 á laugardag. Á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna á föstudag kom fram að tímabundið myndi skylda söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og fela Samkeppniseftirlitinu að vakta að það væri gert. Sérstakt eftirlit Í frumvarpinu segir að við lög um virðisaukaskatt bætit tímabundið ákvæði sem mælir fyrir um að virðisaukaskattur á eldsneyti á dælu skuli vera 11 prósent en ekki 24 prósent frá og með 1. maí til og með 31. maí. „Á umræddu tímabili ber söluaðilum eldsneytis að tryggja að hin tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Samkeppniseftirlitið skal hafa sérstakt eftirlit með tímabundinni lækkun á útsöluverði eldsneytis samkvæmt þessari málsgrein.“ Stjórnvaldssektir og tilkynningar til ráðherra Þá segir í frumvarpinu að við samkeppnislög bætist ákvæði til bráðabirgða sem mæli fyrir um að ákvæði laganna gildi um valdheimildir Samkeppniseftirlitsins. „Samkeppniseftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem gerast brotleg gegn skyldu til að tryggja að hin tímabundna lækkun virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis.“ Eftirlitið skuli gera ráðherra grein fyrir því, telji það misbrest á að tímabundin lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts skili sér í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Ráðherra geti, að fenginni umsögn Samkeppniseftirlitsins og að höfðu samráði við ráðherra skattamála, sett reglugerð um tímabundnar aðgerðir til að bregðast við slíkum misbresti. „Tímabundnar aðgerðir geta falist í ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningar eða annarri stýringu á verðlagningu eða viðskiptakjörum.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Bensín og olía Viðreisn Verðlag Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira