Spá enn vaxtahækkun í maí Agnar Már Másson skrifar 11. apríl 2026 00:06 Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur segir að skattalækkun á eldsneyti geta lækkað verðbólgu um 0,3 prósentustig, þó aðeins tímabundið. Sýn Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar virðist vera sérsniðnar utan um forsenduákvæði kjarasamninga. Þó að bensínverð geti lækkað um tíu prósent tímabundið eru enn líkur á því að Seðlabankinn hækki vexti í maí.
Ríkisstjórnin vonast til að nýjar tímabundnar aðgerðir gegn verðbólgu létti undir hjá heimilum og fyrirtækjum og verði jafnframt tilefni fyrir markaðinn til að halda aftur af verðhækkunum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja aðgerðirnar hins vegar máttlausar eða of seint til komnar. Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Helsta aðgerðin er að virðisaukaskattur af eldsneyti á dælu verður lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent. Samkeppniseftirlitið er sömuleiðis styrkt til þess að fylgjast með verði á dagvöru í sumar. Þá verður ráðist í 500 milljóna króna átak til að fjölga hleðslustöðvum. Verðbólguáhrif 0,3 prósentustig Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir að eldsneytisverð á dælu muni lækka um tíu prósent við þessar breytingar og verðbólguáhrifin væru þá 0,3 prósentustig. „Gott er að taka það fram að þetta eru tímabundin áhrif. Þannig að við munum sjá dæluverð lækka í byrjun maí,“ segir „En síðan mun það hækka á nýjan leik í lok september.“ Fyrst á litið virðist markmið aðgerðanna vera að ná verðbólgu niður vegna forsenduákvæðis í kjarasamningum frá 2024, að sögn Bergþóru. „Ég held að tímasetningin sé engin tilviljun, að þessar aðgerðir eigi sér stað á akkúrat þessum tíma, og verðbólgan verður að vera 4,7 prósent eða lægri í ágústmælingunni,“ bætir hún við. Innflutt verðbólga óumflýjanleg Vegna ófriðar úti í heimi muni frekari verðbólga flytjast inn. „Og það mun leiða til þess að flutningskostnaður muni aukast og fleiri innfluttar vörur,“ segir Bergþóra. Þó eldsneytisverð lækki vegna þessara aðgerða, muni verð líklegast halda áfram að hækka annars staðar vegna aðstæðna úti í heimi. En hefði mátt stíga fastar til jarðar? „Mögulega hefði það verið hægt. En þetta er ástand sem við ráðum lítið við. En þótt við tökum það út fyrir sviga þá erum við megð mjög mikla verðbólgu hér á landi og við erum með heimatilbúnaverðbólgu sem er drifin áfram af hækkun á þjónustu mest megns. Og það er eitthvða sem við þurfum að takast á. „Það er alveg líklegt að Seðlabankinn til dæmsi hækki stýrivexti í maí, þrátt fyrir að við munum sjá þessa tímabudnu lækkun á verðbólgu, þá horfið hann auðvitað fram hjá því . Því að við erum auðvitað með mikla verðbólgu og við þurfu að ná henni niður sem fyrst.“
Efnahagsmál Seðlabankinn Íslandsbanki Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Mest lesið Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Sjá meira