Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 10. apríl 2026 14:31 Munið þið þegar matur var bara matur og við borðuðum það sem sett var á borð fyrir okkur? Það var Bjúgu með kartöflum og uppstúf, Kálbögglar (Kjötfars og kál) eða í karrí, Saltfiskur með hömsum, brasaðar steikur með brúnuðum kartöflu og öllu tilheyrandi, baunum, rauðbeðum, rauðkáli og sósu, Ýsa í raspi með remúlaði, nætursöltuð Ýsa með bræddu smjöri, Grjónagraut með kanilsykri og súrri Lifrarpylsu, Kakósúpu með tvíbökum og rjóma, franskbrauð með gúrkum og sykri eða sultu, Rúgbrauð með þverhandarþykku íslensku smjöri, heimabakaðar kökur, við fengum Epli og Appelsínur á jólunum en helling af kartöflum, rófum alla daga og ber sem við tíndum á haustin, súrmjólk með púðursykri, Cocoa puffs og Trix á morgnana, mjólk og nóg af henni og vatnið okkar hreina úr krananum, malt og appelsín svona spari. En núna má ekki borða orðið neitt, fólk lætur orðið eins og matur sé eitur sérstaklega rautt kjöt, og er flokkunin orðin ansi ströng og margt að varast, gjörunnin matvæli, sætindi, gos, að ógleymdum öllum kúrunum og lífsstílnum eins og lágkolvetna, vegan, grænkerar og því öllu, svo öll ofnæmi og óþolin glúten, laktósa, og öll þurfum við að passa upp á hvað er mikið er af hverju í öllu sem við látum ofan í okkur, Orka, Fita, -þar af mettuð fita, Kolvetni, -þar af sykurtegundir, Trefjar, Prótein, Salt. Fólk á fullu í allskonar fæðubótarefnum og orkudrykkjum í stað þess að borða mat og drekka vatn úr krananum. Og af hverju? jú öll viljum við lifa lengur, vera sem hraustust og geta gert svo ótalmargt gagnlegt og skemmtilegt. Er þetta góð nálgun? erum við að senda rétt skilaboð til barnanna okkar og unglinga? Þetta allt skemmir ánægjuna af þeim einfalda og nauðsynlega hlut að borða mat sem við þurfum öll að gera. Ekki það að að mér hefur alltaf leiðst matur og að búa hann til og núna má ég ekki orðið borða neitt og alls ekki það sem mér finnst gott, ég hef þurft frá unglingsárum að borða á föstum tímum dagsins svo ég gleymi því ekki bara, ekki vegna þess að ég vilji það eða sé að reyna, ég virðist bara ekki verða svöng. Auðvitað á að velja hollt og helst ferskt, elda sem mest sjálfur og ekki borða of mikið það er ekki síður mikilvægt en öllu má nú ofgera og óþarfi að vera með Matviskubit þó við leyfum okkur smá stundum. Það má... P.S. Við vorum með Bjúgu í matinn í gærkvöld Höfundur er neytandi með fortíðarþrá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar