„Ekki gott fyrir hin liðin“ Valur Páll Eiríksson skrifar 11. apríl 2026 15:00 Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs Akureyri. Vísir/Ernir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs á Akureyri, fagnar því að fulltrúar annarra liða í Bestu deild karla spái liðinu neðsta sætinu. Hann segir sína menn klára í slaginn gegn Val í fyrsta leik á morgun. „
Ég held það sé bara frábært. Ég held það sé svo sem ekki mikill munur á þessum neðstu liðum. Ég held þetta segi okkur að liðin hafa litla trú á okkur; liðinu, þjálfarateyminu og Þórsurum. Ég held það sé ekki gott fyrir hin liðin,“ segir Sigurður um spá fyrirliða, forráðamanna og þjálfara sem opinberuð var í vikunni. Klippa: Ekki gott fyrir hin liðin Af hverju er það ekki gott fyrir hin liðin? „Ég held við séum töluvert betri en liðin halda,“ segir Sigurður og hlær. Þórsarar bíða enn nýs heimavölls en framkvæmdir við hann hafa tafist. Til stóð að æfa á vellinum í vetur en þeir hafa þurft að gera sér Bogann að góðu. „Við hefðum viljað æfa aðeins meira úti, við höfum verið mikið inni í Boga – það var ekki stefnan fyrir fram. Hins vegar höfum við æft vel, hörfum styrkt liðið vel, það eru margir nýir menn og einhverjir þeirra koma seint inn svo við erum að slípa þetta til. Ég held við gætum vart verið sáttari við stöðuna heldur en hún er núna,“ segir Sigurður. Valur er fyrsta verkefni Þórs. Spurningamerki eru uppi um Valsliðið sem hefur átt erfiðan vetur sökum meiðsla og töpuðu sannfærandi fyrir KR í bikarnum síðustu helgi. „Leggst mjög vel í mig. Valsararnir stefna á að vera Íslandsmeistarar. Það er rosalega gott test á okkur í fyrsta leik að mæta þeim. þEir eru líklegga ekki mjög sáttir við sína spá heldur og vilja sýna að þeir séu betri en þetta. Ég er mjög spenntur að mæta á útivöll liðs sem ætlar sér Íslandsmeistaratitil,“ segir Sigurður. „Ég held að við munum koma á óvart.“ Hvað sumarið varðar og deildina í heild segir Sigurður að hún hafi vart verið eins sterk og í ár. Erfitt verði að halda sæti sínu. „Ég held að deildin verði mjög öflug. Tvö lið sem voru í botnbaráttu í fyrra, ÍA og KR, eru miklu betri en í fyrra. Það eru ekki mörg lið sem eru líkleg til að vera við botninn. Ég held það verði mjög jafnt frá fimmta niður í tíunda sæti. Ég held það sé erfiðara að halda sér í deildinni en oft áður, það eru það mörg góð lið og góðir þjálfarar, að fyrir minni liðin verði þetta mögulega erfiðara en á síðustu árum,“ segir Sigurður. Viðtalið má sjá í spilaranum. Besta deildin - sunnudagur 12. apríl 13:00 ÍBV - FH (Sýn Sport Ísland) 16:45 Besta messan (Sýn Sport Ísland) 17:00 KR - Keflavík (Sýn Sport Ísland 2) 17:00 Valur - Þór (Sýn Sport Ísland 4) 17:00 KA - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 5) 19:30 Fram - ÍA (Sýn Sport Ísland) 21:35 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira