Rangt svar við raunverulegum vanda Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar 9. apríl 2026 07:31 Að stytta opnunartíma frístundaheimila, eins og meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar hefur samþykkt, er skref í ranga átt. Styttingin mun ekki leysa mönnunarvanda, heldur þvert á móti gera hann verri. Nú þegar glímir starfsemin við skort á starfsfólki, sérstaklega á haustin. Ef starfshlutfall er minnkað og störfin gerð enn óstöðugri en þau eru í dag, verður Reykjavík enn síður samkeppnishæf um hæft fólk. Á frístundaheimilum er unnið ómetanlegt starf af öflugu og metnaðarfullu fólki. Verkefni stjórnmálanna er að styrkja þá umgjörð, ekki veikja hana. Starfsöryggi og fyrirsjáanleiki skipta sköpum. Ef störf á frístundaheimilum verða ótryggari verður erfiðara að laða að og halda í fólk sem vill byggja upp starfsferil í frítímastarfi. Við eigum ekki að sætta okkur við að jafn mikilvæg þjónusta standi stöðugt frammi fyrir manneklu. Eins og sjá má í fundargerð skóla- og frístundasviðs borgarinnar vinna ánægðustu starfsmenn borgarinnar í frístundastarfi. „Frístundastarf skorar hæst í Reykjavík og þar vinnur ánægðasta starfsfólk Reykjavíkurborgar þrátt fyrir oft á tíðum lök vinnuskilyrði og launakjör,“ segir í bókun Guðrúnar Kaldal, áheyrnarfulltrúa framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva. Byggjum upp í stað þess að skera niður Að mati okkar í Viðreisn eiga frístundastarfsmenn skilið uppbyggingu í stað niðurskurðar. Þar liggur lausnin. Við viljum bæta starfsaðstæður á frístundaheimilum, skapa fleiri heilsdagsstörf allt árið og setja starfsþróun í forgang. Við náum þessum markmiðum meðal annars með því að fjölga plássum í sumarfrístund og koma á meiri samvinnu milli skóla og frístundar varðandi heilsdagsstörf. Þá þarf að tryggja starfsfólki raunverulegan undirbúningstíma og lögbinda þjónustu frístundastarfs og félagsmiðstöðva, því gæði starfsins ráðast af fagmennsku, skipulagi og samstarfi. Frístundaheimili eru ein af grunnstoðum velferðar barna og fjölskyldna í Reykjavík. Þar fer fram mikilvægt starf sem styður við félagsþroska, sköpun og sjálfstæði barna utan hefðbundins skólatíma. Þess vegna skiptir miklu máli að umgjörð þeirra sé sterk, stöðug og metin að verðleikum. Við verðum að horfa á dag barnsins í heild. Samfella í degi barna á að vera forgangsmál. Börn eiga að geta sinnt skóla, frístundum, íþróttum og tómstundum í eðlilegu flæði. Það krefst raunverulegrar samvinnu milli skóla, frístundaheimila og íþrótta- og tómstundastarfs. Slík nálgun einfaldar líf barna og foreldra og skapar meiri stöðugleika fyrir starfsfólk. Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð – það er sú breyting sem Reykjavík þarf. Höfundur skipar 6.sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar