Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir, Björn Berg Pálsson, Drífa Magnúsdóttir, Ellen Elísabet Bergsdóttir, Hafliði Páll Guðjónsson, Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir, Snorri Örn Arnaldsson og Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifa 8. apríl 2026 14:31 Í nýlegri skoðanagrein um sundlaugar Reykjavíkur fjalla tveir frambjóðendur til borgarstjórnar um viðhald, hreinlæti, eftirlit og þjónustu. Slík umræða er bæði eðlileg og mikilvæg og við fögnum því að athygli sé beint að sundlaugunum og þau pólitísku úrlausnarefni sem þar er að finna. Sundlaugar borgarinnar eru meðal mikilvægustu samfélagsinnviða Reykjavíkur og það er sjálfsagt að ræða hvernig megi bæta rekstur þeirra, aðbúnað og upplifun gesta. En í aðdraganda kosninga skiptir máli að sú umræða sé málefnaleg og beinist að réttum viðfangsefnum. Það er eðlilegt að ræða pólitíska ábyrgð á viðhaldi, fjármögnun, starfsumhverfi og forgangsröðun. Það á líka vel við að spyrja hvaða áherslur frambjóðendur hafa þegar kemur að rekstri sundlauganna og hvernig þeir vilja styrkja þessa mikilvægu þjónustu til framtíðar. Í sundlaugum Reykjavíkur starfar gott og dugmikið framlínufólk sem sinnir mikilvægri þjónustu við borgarbúa af ábyrgð og fagmennsku. Í pólitískri umræðu ætti áherslan að vera á þau úrlausnarefni sem snúa að rekstri, viðhaldi og starfsskilyrðum, fremur en að gagnrýni beinist að starfsfólkinu sjálfu. Þegar látið er að því liggja að starfsfólk framfylgi ekki reglum nægilega vel, horfi í gegnum fingur sér gagnvart brotum eða skorti vilja og festu til að bregðast við, þá er verið að draga starfsfólk inn í pólitíska orðræðu á ósanngjarnan hátt. Sama á við þegar gefið er í skyn að skortur sé á heimildum eða stuðningi, án þess að umræðan sé sett í það samhengi sem hún á heima í. Starfsfólk sundlauga Reykjavíkur hefur skýrar heimildir til að framfylgja öryggis- og umgengnisreglum sundlauganna og nýtur til þess stuðnings stjórnenda. Umræða um sundlaugarnar í aðdraganda kosninga á ekki að vega að starfsfólki, heldur á að snúast um þau pólitísku úrlausnarefni sem móta starfsskilyrðin. Framlínustarfsfólk sundlauganna ber ekki ábyrgð á fjárveitingum, viðhaldsáætlunum eða rekstrarramma starfseminnar. Þau ákveða ekki hvernig fjármunum borgarinnar er forgangsraðað, heldur vinnur innan þess ramma sem stjórnsýsla og pólitík skapa. Ef skortur er á viðhaldi, ef álag er mikið eða ef mönnun er þröng, þá eru það fyrst og fremst pólitísk úrlausnarefni. Þess vegna ættu frambjóðendur að beina sjónum sínum að því sem þeir geta raunverulega haft áhrif á. Hvernig vilja þeir tryggja betur viðhald sundlauganna? Hvernig vilja þeir styðja reksturinn? Hvernig vilja þeir bæta starfsumhverfið? Hvernig vilja þeir tryggja að sundlaugarnar fái það fjármagn og það svigrúm sem þarf til að halda uppi þeirri þjónustu sem borgarbúar eiga rétt á? Þetta eru spurningarnar sem skipta máli í kosningabaráttu. Það er sjálfsagt að gera kröfur til sundlauganna. Það er líka sjálfsagt að gera kröfur til borgarinnar og þeirra sem sækjast eftir því að stjórna henni. En það er hvorki sanngjarnt né málefnalegt að láta umræðuna snúast um starfsfólkið sjálft. Sundlaugarnar verða ekki bættar með því að varpa rýrð á það framlínufólk sem heldur starfseminni gangandi. Þær verða bættar með skýrri pólitískri ábyrgð, raunhæfum tillögum og markvissum aðgerðum um viðhald, starfsumhverfi og rekstrarskilyrði. Brá Guðmundsdóttir, aðstoðarforstöðukona Laugardalslaugar Björn Berg Pálsson, gæða- og þjónustustjóri Sundlauga Reykjavíkur Drífa Magnúsdóttir, forstöðukona Laugardalslaugar Ellen Elísabet Bergsdóttir, forstöðukona Dalslaugar og Klébergslaugar Hafliði Páll Guðjónsson, forstöðumaður Breiðholtslaugar Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir, forstöðukona Grafarvogslaugar Snorri Örn Arnaldsson, forstöðumaður Sundhöll Reykjavíkur Vala Bjarney Gunnarsdóttir, forstöðukona Árbæjarlaugar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sundlaugar og baðlón Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar