Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson skrifar 8. apríl 2026 09:31 Stjórnarmeirihluti landsins vekur sjaldnast aðdáun. Einu verulegu tilfþrifin sem hann sýnir er í að búa til mismunandi orðaleppa yfir skattahækkanir en þar býr hann bæði yfir úthaldi og þrjósku. Annan hæfileika hefur hann sem er að tala niður til þjóðarinnar. Þá verður tóninn í tali stjórnarmeirihlutans þóttafullur og pirringslegur, eins og gerist hjá þeim sem messar yfir öðrum en veit innst inni að fæstir eru að hlusta af athygli. Þessi geðvonska hefur ítrekað sýnt sig, ekki síst í umræðum um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort halda eigi áfram viðræðum um Evrópusambandið. Þar eru þingmenn stjórnarmeirihlutans, aðallega Samfylkingarinnar og Viðreisnar, eins og helteknir af martraðarkenndri tilhugsun um að þjóðin segi nei. Hvað eftir annað hvæsir hinn geðilli stjórnarmeirihluti milli samanbitinna tannanna að um margt sé að semja, margvíslegar undanþágur séu í boði og því sé sjálfsagt að „kíkja í pakkann“ og sjá hvað er í boði. Engar auðlindir verði hrifsaðar af okkur og alls ekki sjálfstæði okkar. Auk þess sé allt í himnalagi í ríkjum sem hafa gengið inn í þetta dásamlega samband. Þetta segist stjórnarmeirihlutinn vita fyrir víst og það fer ósegjanlega í taugarnar á honum að þjóðin skuli ekki samþykkja þessi rök um gull og græna skóga – og ódýra kaffibolla. Sjálfs sín vegna væri best fyrir stjórnarmeirihlutann að átta sig á því að það hversu mjög hann talar niður til þjóðarinnar er ekki að vinna með honum. Afar líklegt er að þjóðin segi nei í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og skynsamlegt og sjálfsagt er að gera. Samvinna Evrópuþjóða er af hinu góða og getur ekki orðið of mikil í margvíslegu formi, t.d. í gegnum EES-samninginn. Þær raddir heyrast hér á landi að nú sé ekki tíminn til að snúa baki við Bandaríkjunum. Samvinna Evrópuríkja er brýn og nauðsynleg og getur átt sér stað á margvíslegan hátt. Þar eiga Íslendingar ekki að sitja hjá. Það er sannarlega vel þessi virði að kanna kostina við það að gera marvíslega sjálfstæða samninga við sem flest þjóðríki. Bæði við ESB og aðrar þjóðir utan ESB. Það væri óskynsamlegt að ganga í Evrópusambandið og afsala sér sjálfstæði til að gera samninga við þjóðir utan ESB. Það segir enginn að slíkt fyrirkomulag jafngildi vist í Paradís, en það gæti samt falið í sér ótal kosti. Ekkert bendir til að þjóðin sé haldin þeirri ofurást á Evrópusambandinu sem gagntekur Samfylkinguna og Viðreisn svo ógurlega. Samfylkingin væri örugglega stærri ef formaðurinn hefði ekki gengið bak orða sinna með að ekki væri orðið tímabært að huga að Evrópusambandsaðild. Formaður Samfylkingarinnar, Kristrún Frostadóttir, virðist vera búin að gefast upp á því að breikka og stækka flokk sinn og er farin að elta Viðreisn í þeim hugmyndafræðilega vitleysisgangi sem einkennir þann flokk svo mjög. Enginn býst við að Viðreisn sjái annað en Evrópuljósið enda er flokkurinn orðinn svo illa blindaður af því að ekki yrði vandræðalaust fyrir stjórnmálaflokka með sómakennd að vinna með honum. Svo er Flokkur fólksins. Hann er fyrir formanninn, Ingu Sæland, og hennar áhugamál. Og henni gengur bara vel að þefa upp fylgi. Henni hefur tekist að skapa flokki sínum sérstöðu í stjórnarmeirihlutanum. Flokkur hennar er orðinn að villuljósi um ófjármögnuð kosningaloforð og er enginn afsláttur gefinn af því að keyra þau í gegn. Það að Flokkur fólksins sé ráðvilltur gagnvart Evrópusambandinu kemur ekki á óvart, er bara eins og við er að búast. Umræða um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu virðist ætla að einkennast af miklu tilfinningafári stjórnarmeirihlutans fremur en skynsamlegum málflutningi. Þannig hefur einn starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar nýlega haldið því fram að langvarandi verðbólgu og háa vexti megi rekja til óábyrgra aðgerða fyrri ríkisstjórnar í kórónuveirufaraldrinum og ýjar að því að efnahagsástandið sé þannig að rétt sé að leita í faðm Evrópusambandsins. Gerir hann þetta til að auka lýkur á að þjóðin samþykki að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Sá málflutningur er Samfylkingunni ekki til sóma. Óttinn við nei-ið má ekki ræna þingmenn stjórnarmeirihlutans allri skynsemi, en virðist samt á góðri leið með að gera það. Stílbragð fengið að láni frá Kolbrúnu Bergþórsdóttur en innihald annað. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar