Vaktin: Austanbylur annan í páskum Agnar Már Másson, Rafn Ágúst Ragnarsson og Eiður Þór Árnason skrifa 6. apríl 2026 07:21 Úr vefmyndavél við Skarfabakka í Reykjavík klukkan 13 í dag. Skjáskot/Faxaflóahafnir Páskahretið setti strik í reikning ferðalanga um allt land en gular og appelsínugular viðvaranir tóku gildi eftir hádegi í dag. Í vaktinni hér að neðan var fylgst með áhrifum veðursins. Fyrstu veðurviðvaranir tóku gildi klukkan 7 í morgun á Suðurlandi þar sem djúp lægð nálgaðist úr suðvestri. Viðvaranir náðu síðar til allra landshluta og var spáð austanvindi upp á 15-28 m/s með snörpum vindhviðum. Þá var eitthvað um snjókomu eða skafrenning með slæmu skyggni og versnandi færð. Upp úr hádegi voru viðvaranirnar á Suðurlandi færðar upp á appelsínugult og um klukkan 13 tóku gular viðvaranir gildi á höfuðborgarsvæðinu og síðan á Norðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi. Faxaflói var færður upp á appelsínugult klukkan 14. Um miðnætti falla flestar viðvaranir úr gildi nema á Norðaustur- og Austurlandi þar sem þær falla úr gildi klukkan 3 í nótt. Dagurinn var annasamur hjá björgunarsveitum sem þurfu meðal annars að losa fjölmörg ökutæki, manna lokunarpósta, bregðast við foktjóni og taka þátt í aðgerðum vegna neyðarboðs einkaflugvélar á Akureyri. Um kvöldið gerðu þrumur og eldingar vart við sig á Suðurlandi og suðvesturhorninu. Þá var nokkuð um rafmagnsleysi á svæðinu sem hafði í sumum tilvikum áhrif á hitaveitu og stóriðju. Raforkukerfið var komið í jafnvægi síðar um kvöldið. Um tíuleytið var opnað fyrir umferð um Hellisheiði, Holtavörðuheiði og Þrengsli en víða eru enn í gildi lokanir og vegfarendur því hvattir til að fylgjast vel með færð. Áfram gætir áhrifa veðursins á morgun þar sem Icelandair hefur fellt niður morgunflug frá Bandaríkjunum og Kanada, auk þess sem Herjólfur hefur fellt niður fyrri ferð sína. Ef þú vilt koma á framfæri frétt, ábendingu eða myndum vegna austanbylsins geturðu sent okkur fréttaskot hér. Ef vaktin birtist ekki hér fyrir neðan er ráðlagt að endurhlaða síðunni.
Ef þú vilt koma á framfæri frétt, ábendingu eða myndum vegna austanbylsins geturðu sent okkur fréttaskot hér.
Veður Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Sjá meira