Lilja mætt aftur á Alþingi Eiður Þór Árnason skrifar 5. apríl 2026 21:28 Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar og tímabundinn starfsmaður þingflokksins. Vísir/Vilhelm Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, hefur hafið störf sem starfsmaður þingflokksins. Lilja var kjörin formaður Framsóknar í febrúar en hún hefur ekki átt sæti á þingi eftir kosningarnar 2024.
Lilja hóf störf 25. mars og gegnir stöðunni tímabundið á meðan Einar Gunnar Einarsson, annar tveggja starfsmanna þingflokksins, er í veikindaleyfi. Hún segir það heiður að fá að starfa með þingflokknum og vinna að uppbyggingu flokksins. Þá telur Lilja það vera kost að vera formaður utan þings í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þetta segir Lilja í svari við fyrirspurn fréttastofu. Hún var þingmaður á árunum 2016 til 2024 og gegndi sömuleiðis ráðherraembættum. Hafi nóg að gera Lilja segir í svari til fréttastofu að nú sé verk að vinna og Framsókn þurfi að sækja fram á þessum óvenjulegu tímum í íslenskum stjórnmálum. Flokkurinn hyggist kynna efnahagstillögur sínar eftir páskafrí þingsins og hún sé sannfærð um að gengi flokksins verði gott í komandi sveitarstjórnarkosningum. Fylgi Framsóknar fór í sögulegar lægðir í síðustu þingkosningum og í nýlegri könnun Gallup mældist Framsóknarflokkurinn ekki inni á þingi. Framsókn hefur einnig átt erfitt uppdráttar í borginni að undanförnu ef marka má skoðanakannanir og mældist flokkurinn með 5,2 prósenta fylgi í marskönnun Maskínu. Jafngildir það einum borgarfulltrúa en Framsókn er í dag með fjóra. Gagnrýnd fyrir að vera utan þings Í kosningabaráttunni fyrir formannskjörið í febrúar var Lilju legið á hálsi fyrir að vera utan þings en sjaldgæft er að formenn stjórnmálaflokka eigi ekki sæti á Alþingi. Ræddi mótframbjóðandi hennar Ingibjörg Ólöf Isaksen til að mynda ítrekað um meint mikilvægi þess að hún væri sitjandi þingmaður og hefði leitt þingflokk Framsóknar í fjögur ár. „Lilja talar gegn betri vitund,“ sagði Ingibjörg í Pallborðinu á Vísi skömmu fyrir flokksþingið um að Lilja teldi það aukaatriði máls að formaðurinn sæti á þingi. Lilja svaraði því að það gæti verið kostur í stöðunni að formaðurinn væri frjáls í að sinna grasrótarstarfi og hefði til þess tíma. „Erum við ekki að ræða stjórnmál hér? Ég hugsa að ég nái fleiri eyrum hér en á þingi.“
Framsóknarflokkurinn Alþingi Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Skuldar ekkert Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Sjá meira