Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar 4. apríl 2026 11:01 Það er liðinn rúmur mánuður síðan stríðið hófst í Íran og Mið Austurlöndum. Trump hefur opinberlega sett fram eftirfarandi markmið. Í fyrsta lagi að gera kjarnorku- og eldflaugaáætlanir Írans óvirka. Í öðru lagi að eyða sjóhersgetu Írans og svæðisbundnum áhrifum hryðjuverkasamtaka á borð við Hamas, Hezbollah og Húta sem Íran styður. Í þriðja lagi er stefnt að upplausn Íslamska byltingarvarðliðið (Islamic Revolutionary Guard Corps, IRGC). Og hann fullyrðir að hæfileikar Írans er að vera útrýmt. Þrátt fyrir fullyrðingar Trumps um útrýmingu á hæfileikum er Íran enn fært um að berjast, þó veikara, og virðist undirbúið fyrir langvarandi stríð. Það sem við stöndum frammi fyrir er núverandi Bandaríkjastjórn, hópur fremur ófaglegra enstaklinga eins og Pete Hegseth sem kallar sig „stríðsráðherra“, sem virðist heillaður af eigin eyðileggingarmætti. Fáir telja að Trump hafi skýra hernaðaráætlun, þar sem hún breytist daglega. Þetta virðist vera stríð í leit að hernaðaráætlun, frekar en stríð sem barist er á grundvelli skýrrar hernaðaráætlunar. Hann virðist nú leita að leið út en finnur ekki útgönguleiðina. Þegar stríðið hófst framleiddi Íran um 5% af olíu heimsins, en í dag hefur landið í raun áhrif á um fimmtung af heimsmarkaði með olíu með því að stjórna Hormuz-sundi. Það þýðir að Íran er ólíklegt til að samþykkja samninga nema á mjög hagstæðum kjörum. Þetta bendir til þess að Trump sé að skoða mismunandi möguleika, þar sem óljóst er hvert stríðið stefnir og kostnaður þess hefur þegar mikil áhrif á svæðið og heimsbúskapinn. Þetta er stríð sem ekki var nauðsynlegt fyrir Bandaríkin. Þau þurftu ekki að hefja það og höfðu aðra möguleika til að takast á við Íran. Hernaðarmáttur og kjarnorkugeta Írans var ekki veruleg ógn fyrir Bandaríkin. Samt ákvað Trump að fara í stríð, líklega frekar út frá innsæi en skýrri hernaðaráætlun. Fyrir Íslamska byltingarvarðliðið (IRGC), hversu grimmilegt, kúgandi og einræðislegt sem það er, þá er þetta nauðsynjastríð. Þeir hafa ekkert val. Tilvera þeirra er í húfi. Þeir telja sig berjast fyrir málstað Guðs (Allah) og að byltingin sé til vegna vilja Guðs. Bandaríkjamenn eru hins vegar í valstríði. Slík stríð endast aðeins að vissu marki áður en kostnaðar- og ábatamat tekur yfir. Þegar kostnaður fer að vega þyngra en ávinningur fara menn að efast. Ef átökin dragast á langinn, munu hækkandi verð verða viðvarandi og sívaxandi, þar sem verðbólga eykur flutningskostnað sem að lokum leggst á neytendur. Ef Hormuz-sundið verður áfram lokað eða starfar aðeins á 10–20% af eðlilegri afkastagetu í lengri tíma er nánast öruggt að það muni leiða til annarrar alþjóðlegrar efnahagslægðar, eitthvað sem Donald Trump myndi ekki vilja bera ábyrgð á. Að auki vill bandarískt samfélag ekki annað Víetnamstríð, langvarandi, kostnaðarsamt og óákveðið stríð án skýrs sigurs, með miklu mannfalli og djúpri andstöðu innanlands. Trump, sem leggur mikla áherslu á hvernig hann verður metinn í sögunni, myndi án efa ekki vilja vera minnst fyrir „Víetnamstríð Trumps“. Í víðara samhengi má segja að Rússland sé meðal þeirra sem hagnast á þessum átökum. Ekki aðeins vegna þess að Bandaríkin hafa slakað á þvingunum tengdum olíu til að draga úr óvissu á mörkuðum, heldur einnig vegna þess að loftvarnarbúnaður, sérstaklega eldflaugavarnir sem annars hefðu getað farið til Úkraínu, eru nú nýttar af ríkjum eins og Sádí-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmunum (UAE), Katar, Kúveit, Barein. Það þýðir að fleiri rússneskar eldflaugar munu skjóta á Úkraínu á næstu mánuðum, sem er jákvætt fyrir Moskvu. Og þegar Trump talar um að íhuga alvarlega að draga Bandaríkin út úr NATO er ekki erfitt að ímynda sér að Vladímír Pútín taki slíku með mikilli ánægju. Hvort sem Trump áttar sig á því eða ekki hefur hann misst tökin á atburðarásinni og er nú að bregðast við ófyrirsjáanlegum hamförum sem eru að eiga sér stað. Hann hefur ekki lengur stjórn á niðurstöðum þeirra, tjóni eða tímalengd. Ég held að tilvitnun í Winston Churchill frá fjórða áratuginum lýsir vel hvar Trump er í dag. "The statesman who yields to war fever must realise that once the signal is given, he is no longer the master of policy, but the slave of unforeseeable and uncontrollable events." (Winston Churchill) Höfundur er með MA gráðu í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íran Bandaríkin Mest lesið Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar Grímsson og Cherry-picking Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar