Fimm kærur á borði aganefndar: „Lítum þetta alvarlegum augum“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. apríl 2026 09:36 Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, segir niðurstöðu að vænta í málinu á laugardag. Það sé litið alvarlegum augum að áhorfendur hafi farið inn á völlinn í Grindavík. Samsett/Vísir „Við viljum alls ekki sjá þetta. Ég og við öll í kringum sambandið lítum þetta alvarlegum augum,“ segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, um þá uppákomu sem átti sér stað í leik Grindavíkur og Njarðvíkur í Bónus deild karla í körfubolta í gær. „
Þetta er eitthvað sem þarf að taka á innan okkar raða. Það er kannski erfitt fyrir mig að tjá mig um þetta akkúrat núna meðan þetta er í þessu ferli. Þetta fer fyrir aga- og úrskurðarnefnd og hún ber upp sinn dóm í málinu,“ segir Hannes jafnframt í samtali við Vísi. Líkt og greint var frá í gærkvöldi og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði sauð hressilega upp úr undir lok leiks Grindavíkur við Njarðvík í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar í Bónus deild karla. Stimpingar milli leikmanna undu upp á sig þar sem gæslumenn og lögreglufólk þurfti að blanda sér í leikinn eftir að stuðningsmenn fóru inn á völlinn til að taka þátt í átökunum. Njarðvík vann óvæntan tíu stiga sigur í leiknum, 97-87, gegn deildarmeisturum Grindavíkur sem hafa ekki tapað leik í Grindavík í allan vetur. Njarðvík leiðir einvígi liðanna því 1-0 fyrir annan leik liðanna sem fram fer í IceMar-höllinni í Reykjanesbæ á mánudagskvöld. Niðurstöðu að vænta á laugardag Hannes segir að aga- og úrskurðarnefnd KKÍ muni fara yfir málið á næstu dögum og hefur skamman tíma, þar sem liðin mætast öðru sinni á mánudaginn kemur. Fimm kærur liggja fyrir nefndinni. „Meðlimir aga- og úrskurðarnefndar fá ekki mikið frí yfir páskana og það verður nóg að gera hjá þeim í dag og á morgun. Við gerum ráð fyrir að á laugardaginn verðum við komin með niðurstöðu og dóma í málinu,“ „Nokkrum kærum var skilað inn í gærkvöldi og í nótt. Menn þurftu að gefa sér tíma í að skrifa upp kærur sem eru nú komnar til skila og það fer á borð nefndarinnar,“ segir Hannes. Alvarlegast að stuðningsmenn fari inn á Leikmenn geta á von á því að fá leikbann fyrir annan leik liðanna í Njarðvík á mánudaginn kemur en þá getur Grindavík einnig átt von á viðurlögum þar sem ekki tókst að tryggja öryggi leikvallar. „Viðurlög leikmanna er eitt en alvarleikinn í þessu er sá að það er farið inn á völlinn. Það eru áhorfendur sem fara framhjá gæslu og inn á völlinn. Ég held að það verði mesta yfirferðin hjá aga- og úrskurðarnefnd.“ Alvarlegast er að áhorfendur hafi farið inn á völlinn. Dominykas Milka var rekinn út úr húsi fyrir að ganga á milli stuðningsmanna sem virtust ætla að ráðast á leikmenn.vísir / guðmundur Hvernig er regluverkið varðandi slíka öryggisbresti? Það eru að líkindum sektir en geta stakir áhorfendur farið í bann eða Grindavík jafnvel þurft að leika fyrir luktum dyrum? „Allt þetta er opið og allt þetta er eitthvað sem reglugerðir heimila. En nefndin metur þann alvarleika og við sjáum bara hver niðurstaðan úr því. En það er skýrt að það á enginn að komast inn á leikvöllinn,“ segir Hannes. Brýning fyrir bæði félög og stuðningsfólk Hannes segir KKÍ brýna mikilvægi sterkrar öryggisgæslu reglulega við félög á snærum sambandsins. Raundæmi gærkvöldsins sé sterk brýning fyrir komandi átök er úrslitakeppnin fer fram næstu viku. Stuðningsmaður Njarðvíkur var rekinn á dyr.vísir / guðmundur „Þetta er góð brýning fyrir félögin okkar. Sama hvað kemur upp innan vallar á enginn að geta farið inn á völlinn. Á þessu stigi verður að vera vel af gæslu og fólk sem er til þess fært að vera í gæslu. Það dugar ekki að setja einhvern í vesti og segja að hann sé í gæslu. Það mega bæði vera öflugir sjálfboðaliðar eða aðkeypt gæsla,“ segir Hannes. Jafnframt megi áhorfendur taka atvikið til sín fyrir spennuleikina sem fram undan eru. „Þetta er ekki bara brýning fyrir félögin heldur einnig fyrir áhorfendur. Áhorfendur eiga að taka þátt í leiknum, lifa sig inn í leikinn og taka þann þátt sem þeir geta, en bara ekki fara inn á völlinn. Það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir félag viðkomandi áhorfenda og einnig varðandi harðari reglur. Ég biðla til stuðningsmanna að njóta þess að vera á vellinum en að fara alls ekki inn á völlinn eða vera með dónaskap og slíkt.“
KKÍ UMF Grindavík UMF Njarðvík Bónus-deild karla Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira