Leitar til Harry Potter gegn galdraskák Grindvíkinga Valur Páll Eiríksson skrifar 1. apríl 2026 11:30 Rúnar Ingi segist mæta töfra skákmönnum frá Grindavík, með sína hefðbundnu skákmenn úr Njarðvík. Hann hafi horft á Harry Potter á meðan hann lá yfir skákborðinu í undirbúningnum. Samsett/Vísir „Þetta er það sem maður hefur beðið eftir frá því að undirbúningur hófst um mitt síðasta sumar. Eftirvæntingin er að sjálfsögðu mikil,“ segir Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, fyrir leik liðsins við deildarmeistara Grindavíkur í úrslitakeppni Bónus deildar karla í körfubolta sem hefst í kvöld.
Biðin hefur verið löng eftir því að úrslitakeppnin hefjist og Rúnar getur vart beðið eftir því að hefjast handa. Verkefnið er að stærri gerðinni, í Grindavík. „Ég hefði viljað byrja þetta á heimavelli í kvöld en það er búið að stokka spilin, við enduðum í áttunda sæti og mætum deildarmeisturum Grindavíkur. Það er bara ærið verkefni fram undan og við mætum galvaskir í Grindavík í kvöld og ætlum að selja okkur dýrt til að stela fyrsta leik,“ Eðli málsins samkvæmt eru líkurnar nánast allar með Grindavík í liði fyrir einvígið, gegn Njarðvíkurliði sem hefur átt misjöfnu gengi að fagna í vetur og kemur inn í leik kvöldsins sem áttunda besta lið deildarinnar, gegn deildarmeisturum. Rúnar segir sannarlega gæðamun á liðunum, sem kalli á ákveðnar aðgerðir til að ná í úrslit. „Ég held að þú finnir engan fyrir utan okkur 17 í klefanum okkar sem hafa trú á að við getum eitthvað strítt þeim. Þetta er ákveðin skák. Jóhann [Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur] er með einhverja svona töfra skákmenn en ég með hefðbundna skákmenn. Þannig að við þurfum að finna einhverjar skemmtilegar lausnir,“ segir Rúnar. „Þetta hefur svo sem engin önnur áhrif á okkur nema í hvatningu. Það er engin pressa á okkur, getum við notað það okkur til góðs? Það verður að koma í ljós. Grindavík er virkilega gott körfuboltalið en ég er líka með mjög öfluga körfuboltaleikmenn og ef við setjum saman almennilega liðsframmistöðu þá erum við stórhættulegir. Við höfum sýnt það í vetur, þó það sé ekki nægilega oft.“ Þú nefnir töfra skákmenn gegn hefðbundnum. Hefurðu legið yfir skákborðinu síðustu daga? „Ég horfði á Harry Potter til að athuga hvort ég fyndi einhverjar lausnir þar,“ segir Rúnar léttur. „En já, já, þetta er úrslitakeppnin, við þekkjum Grindavíkurliðið vel og vitum hvaða styrkleika þeir hafa fram að færa og einhvern veginn þurfum við að koma með krók á móti bragði,“ „Svo verður skákmönnunum væntanlega endurraðað eftir kvöldið í kvöld og eitthvað nýtt gerist eftir helgina, á mánudaginn. En ég er spenntur að sjá hvort mínir menn nái fókusnum og áræðninni sem er hluti af því að spila í úrslitakeppninni. Ef við náum aðeins fyrsta högginu og búa til einhver örlítinn efa hjá Grindavíkingunum þá er það risastórt fyrsta skref og við sjáum hvað það gefur okkur,“ segir Rúnar. Leikur Grindavíkur og Njarðvíkur hefst klukkan 19:00 í kvöld og bein útsending hefst klukkan 18:50 á Sýn Sport Ísland 2. Í kvöld mætast einnig Stjarnan og KR í fyrsta leik í einvígi þeirra liða. Sá leikur hefst klukkan 19:30 í Garðabæ og hefst bein útsending klukkan 19:20 á Sýn Sport Ísland.
Bónus-deild karla UMF Njarðvík UMF Grindavík Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Sjá meira