Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 30. mars 2026 12:52 Finnur Aðalbjörnsson er einn af eigendum Skógarbaðanna en þeir standa nú í stækkun og uppbyggingu hótels á svæðinu. Vísir/Arnar Eigandi Skógarbaðanna segir áform ríkisstjórnarinnar um að hækka virðisaukaskatt á baðlón valda sér miklum áhyggjum. Hann hafi þegar gefið út verðskrá fyrir næsta ár sem sé í sölu hjá ferðaþjónustuaðilum. Þá muni hækkunin setja stækkunaráform þeirra í uppnám.
Í fjármálaáætlun til næstu ára kemur fram að færa eigi virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent. Finnur Aðalbjörnsson, eigandi Skógarbaðanna fyrir norðan, kveðst hafa orðið afar hissa þegar hann frétti af áformunum. Þau standa í miklum framkvæmdum þessa dagana, eru að byggja hótel og stækka lónið. „Við þurfum að fara að hugsa þetta dæmi bara allt saman upp á nýtt, við erum til dæmis búin að gefa út verðskrá fyrir 2027. Það er búið að selja hana áfram til ferðaþjónustuaðila sem eru svo búnir að selja ferðina til landsins.“ Skógarböðin á AkureyriVísir/viktor Ekki bara túristar sem heimsækja böðin Þá bendir hann á að mikill fjöldi heimamanna kaupi árskort í lónið. „Við erum með rétt um 1.500 kort í gangi og megnið af þessu eru Akureyringar og nærsveitarmenn og það er þessu fólki að þakka að þessi uppbygging hefur getað orðið svona hröð. Þetta mun náttúrulega setja þetta allt í uppnám af því að þetta fólk er bara að fara að borga þessa hækkun. Það er enginn afgangur til að vera að fara að borga þetta. Við sitjum ekki á neinum sjóðum eða einhverjum varaforða eða nokkurn skapaðan hlut. Við borgum ekki út neinar arðgreiðslur eða neitt. Það fer allt í uppbyggingu hérna á svæðinu. Það sem er verið að gera núna, það er bara verið að tefja það eða setja þetta allt í uppnám.“ Áformin valdi honum sjálfum kvíða og áhyggjum. „Þetta er svona hringinn í kringum landið. Ég talaði við kollega minn hérna suður á landi í gær, sko, og þú veist að hann var bara eyðilagður yfir þessu.“ Ísland súrnar í samanburði við Noreg Finnur óttast þróunina því um sé að ræða atvinnugrein í alþjóðlegri samkeppni. „Þetta er náttúrulega einn partur í því að það er verið að verðleggja okkur út af kortinu. Það er náttúrulega nú þegar byrjað með allri þessari skattpíningu. Fólk fer bara til Noregs miklu frekar. Noregur er bara miklu meira spennandi ferðamannastaður heldur en Ísland orðið af því að þar er ríkið að hjálpa til við uppbyggingu í ferðamennsku. En hér er bara allt skotið niður sem gengur sæmilega og er ekki einhver baggi á þjóðinni. Þá á bara að reyna að eyðileggja það líka, bara alveg í einum grænum hvelli,“ segir Finnur Aðalbjörnsson eigandi Skógarbaðanna.
Sundlaugar og baðlón Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Innviðagjald og hækkun vasks eyðileggi samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur það verið rætt í atvinnuvegaráðuneytinu að nýtt innviðagjald, sem bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn munu þurfa að greiða, gæti numið fimm þúsundum króna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir ferðaþjónustuna renna blint í sjóinn og að þetta muni tvímælalaust skaða greinina mikið. 27. mars 2026 20:52 Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. 27. mars 2026 15:52 Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Sjá meira
Innviðagjald og hækkun vasks eyðileggi samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur það verið rætt í atvinnuvegaráðuneytinu að nýtt innviðagjald, sem bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn munu þurfa að greiða, gæti numið fimm þúsundum króna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir ferðaþjónustuna renna blint í sjóinn og að þetta muni tvímælalaust skaða greinina mikið. 27. mars 2026 20:52
Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. 27. mars 2026 15:52