Viðskipti innlent

Sigur­jón fékk heiðurs­verð­laun SVEF

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sigurjón fékk heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til vefmála á Íslandi.
Sigurjón fékk heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til vefmála á Íslandi. Arnar Valdimarsson

Íslensku vefverðlaunin fóru fram í 25. sinn í Hörpu í gær. Sextán veflausnir hrepptu verðlaun og voru sérstök verðlaun veitt fyrir hönnun/viðmót ársins og verkefni ársins.

Verðlaunin eru veitt ár hvert á vegum Samtaka vefiðnaðarins (SVEF). Að auki voru veitt heiðursverðlaun SEF en þau hlýtur sá sem þykir hafa lagt mikið af mörkum til vefmála á Íslandi.

Lestrarappið Undralingur hlaut verðlaun fyrir besta appið og skákaði þar bæði appi Íslandsbanka og Nova. Lestrarappið var einnig valið stafræna lausn ársins. Nýr vefur Kvikmyndamiðstöðvar Íslands hlaut verðlaun fyrir efnis- og fréttaveitu ársins og var opinber vefur ársins. 

Helena Rut Sveinsdóttir og Gunnar Bjarki Björnsson eru forsvarsmenn Lestrarappsins Undralingur.Arnar Valdimarsson

Þá var ferðaþjónustuvefur ársins nýr vefur Íslandsstofu - Inspired by Iceland. Vefurinn fékk einnig verðlaun í flokknum hönnun og viðmót ársins.

Fyrirtækjavefur ársins hjá litlu fyrirtækja var Lesa, meðalstóru fyrirtæki vefur Tixly og stóru fyrirtæki vefur Eflu. Gervigreind ársins var stafrænn ráðgjafi Elko og gæluverkefni ársins Rástímar.is. HMS: Byggingarleyfi á Íslandi hlaut verðlaun fyrir innri vef ársins og Ræktum vitið fyrir markaðsvef ársins.

Andri Már Kristinsson, Arnar Gísli Hinriksson, Birgir Hrafn Birgisson og Bjarki Steinn Birgisson.Arnar Valdimarsson

Nemendur Tækniskólans hlutu verðlaun fyrir nemendaverkefni ársins fyrir Pokédexdle og stóðu Kolibri og Okkar heimur að samfélagsvef ársins, Okkar heimur. Söluvefur ársins var söluvefur Orkureitsins og tækninýting ársins Silva - Þín heilsa, þín sýn.

Birna Rún Eiríksdóttir leikkona var kynnir kvöldsinsArnar Valdimarsson

Að lokum hreppti Sigurjón Ólafsson, ráðgjafi og eigandi Fúnksjón vefráðgjafar, heiðursverðlaunin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×