Norðurevrópskir bandamenn funda á Íslandi á næsta ári Kjartan Kjartansson skrifar 27. mars 2026 07:44 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, á fundi JEF-ríkjanna í Helsinki í gær. Matti Porre/Skrifstofa forseta Finnlands Leiðtogafundur svonefndra Sameiginlegra viðbragðssveita (JEF) verður haldinn á Íslandi í fyrsta skipta á næsta ári. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, lagði boðið fram og þekktust leiðtogar JEF-ríkjanna það á fundi í Helsinki í gær.
JEF er vettvangur ríkja í Norður-Evrópu um öryggi og varnir undir forystu Breta. Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin og Holland eiga aðild að viðbragðssveitunum. Leiðtogar ríkjanna funduðu í Helsinki að boði Alexanders Stubb, forseta Finnlands, í gær. Kristrún segir um boðið til Íslands á næsta ári í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að það sé leið fyrir Ísland að leggja lóð á vogarskálarnar í samstarfinu. Þannig verði sjónum einnig beint að Norðurslóðum. „Við ræddum mikið um öryggi og varnir á Norðurslóðum. Það er dýrmætt fyrir okkur Íslendinga að eiga bandamenn sem sýna landfræðilegri legu okkar skilning. Skilja hvernig íslenska módelið virkar. Skilja hvað það er sem við gerum vel – og hvað það er sem hentar okkur síður. Um þetta snýst einmitt gott samstarf. Þegar fólk vinnur saman á grundvelli eigin styrkleika. Þannig styrkjum við öryggi og varnir Íslands. Og sköpum gott samfélag,“ skrifaði Kristrún í færslu á samfélagsmiðli á leið heim af fundinum. Á fundinum í Helsinki var meðal annars rætt um stuðning ríkjanna við Úkraínu en þau hafa sent hergögn og búnað til Úkraínu auk þess að þjálfa þarlent varnarlið. Ógn af svonefndum fjölþáttahernaði Rússa var einnig ofarlega á baugi á fundinum. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti að ríkisstjórn hans hefði loks ákveðið að beita sér af aukinni hörku gegn svonefndum skuggaflota Rússa.
Utanríkismál Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Norðurslóðir Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira