Eigi veldur sá er varar! Stefán Pálsson skrifar 25. mars 2026 13:02 Rithöfundurinn Jón Kalman Stefánsson ritaði kröftuga grein fyrr í vikunni sem hefur vakið mikla athygli. Þar fer hann hörðum orðum um samfélag sem kemur illa fram við börn. Tilefnið er fréttir sem birtust um helgina af því að börn sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi hafi ekki aðgang að leikskólum, tómstundum eða frístundaheimilum. Ljóst virðist vera að í þessu felist brot á Barnasáttmálanum. Þessi staða er vissulega alvarleg, en var því miður ekki ófyrirséð. Hana má rekja til breytinga sem gerðar voru á lögum um málefni innflytjenda síðastliðið haust. Ríkisstjórninni var þá mikið í mun að sýna að hún væri hörð í horn að taka þegar kæmi að útlendingum og hefur dómsmálaráðherra til að mynda leynt og ljóst kallað eftir því að komið sé upp brottvísunarfangelsum fyrir hælisleitendur sem hér fá synjun og að þar verði börn vistuð til jafns við fullorðna. Með breytingunum síðasta haust var samningum ríkisins við nokkur sveitarfélög, Reykjavík þar á meðal, sagt upp en Vinnumálastofnun falið í staðinn að sinna þjónustu við þennan viðkvæma hóp. Þessi áform hringdu þegar viðvörunarbjöllum innan borgarkerfisins, þar sem fólki var fullljóst hversu vandmeðfarin málaflokkurinn væri og hversu dýrmæt þekking væri fyrir hendi innan borgarinnar. Miklar efasemdir vöknuðu um að verkum hlaðin Vinnumálastofnun væri heppilegur aðili til að taka við keflinu. Á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar þann 3. september sl. var umsögn borgarinnar um lagafrumvarpið lögð fram til umræðu. Fulltrúar samstarfsflokkanna í meirihlutanum, undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, töluðu afar skýrt í bókun sinni þar sem þeir „...lýsa yfir miklum áhyggjum af þjónusturofi við viðkvæma hópa einstaklinga, sérstaklega barna og ungmenna við yfirfærslu verkefna frá Reykjavíkurborg yfir til Vinnumálastofnunar. Um flókna og umfangsmikla þjónustu er að ræða og hefur Vinnumálastofnun ekki komið nægilega skýrt fram að mati velferðarráðs um hvernig stofnunin hyggst leysa verkefnið. Fagfólk Reykjavíkurborgar hefur sinnt þessum málaflokki mjög vel. Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir þjónustu- og þekkingartap enda engin fagleg tengsl á milli starfsfólks Vinnumálastofnunar og miðstöðva borgarinnar. Telja samstarfsflokkarnir brýnt að sú sérhæfða þekking og ráðgjöf sem sveitarfélögin hafa byggt upp tapist ekki, heldur verði tryggt að nærþjónusta og þekking á hverfum haldist sem mikilvægur þáttur í inngildingu.“ Einnig vísuðu fulltrúar samstarfsflokkanna til umsagna UNICEF og Barnaheilla sem efast höfðu um getu Vinnumálastofnunar til að mæta þörfum barna sem verið hafa í erfiðum aðstæðum. Lokaorð bókunarinnar voru þessi: „Vinnumálastofnun býr ekki yfir sömu innviðum og sveitarfélögin, þegar kemur að möguleikunum til að hlúa vel að börnum á flótta.“ Athyglisvert og ánægjulegt var að sjá hversu breið pólitísk samstaða var í ráðinu í þessu máli. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar lögðu fram sínar eigin bókanir sem gengu í sömu átt. Í ljósi þess hversu sterk varnaðarorðin voru, er þeim mun dapurlegra að ríkisstjórnin hafi haft þau að engu. Og nú virðast verstu spár hafa raungerst. Það er ljótur blettur á okkar samfélagi. Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi Vinstrisins í komandi borgarstjórnarkosningum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Pálsson Borgarstjórn Ofbeldi gegn börnum Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar