Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Birgir Olgeirsson skrifar 25. mars 2026 10:02 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, á fundi utanríkismálanefndar á Alþingi í morgun. Vilhelm Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir engin samtöl hafa átt sér stað við Evrópusambandið um svokallaðan „fiskveiðikommissara“ og að ummæli hennar hafi aðeins vísað til léttra vangaveltna Norðmanna.
Engin samtöl hafa átt sér stað við Evrópusambandið um svokallaðan fiskveiðikommissara, eða sjávarútvegsmálastjóra Evrópusambandsins, að sögn Þorgerðar Katrínar. Málið var í brennidepli á opnum fundi í utanríkismálanefnd Alþingi í dag þegar Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði ráðherrann út í frétt Morgunblaðsins um meint ummæli hennar á fundi með íslensku millilandaviðskiptaráðunum. Frétt Morgunblaðsins byggði á frásögnum ónafngreindra fundargesta. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins sótti að ráðherra á fundi utanríkismálanefndar í morgun. Vísir/Vilhelm Diljá spurði meðal annars hvort í samtölum við fulltrúa ESB hefði komið fram að sambandið myndi taka upp íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið og hvort Íslandi hefði verið lofað, eða gefið í skyn, að landið fengi sjávarútvegskommissara við mögulega aðild. Hún boðaði jafnframt upplýsingabeiðni um formlega og óformlega fundi íslenskra ráðamanna við fulltrúa ESB. Sett fram til að undirstrika styrk Íslands Í svari sínu hafnaði Þorgerður því að slíkar umræður hefðu átt sér stað. Hún sagði „engar aðildarviðræður eru farnar af stað“ og bætti við að „engin samtöl hafa átt sér stað varðandi einhverja fiskveiðikommissara við Evrópusambandið, bara ekki.“ Að hennar sögn vísaði hún á fundinum aðeins til sviðsmyndar sem Norðmenn hefðu varpað fram í léttum tón: „Hvað ef Ísland verður á undan okkur inn í Evrópusambandið og við þurfum hugsanlega að semja við íslenskan fiskveiðikommissar? Og svo hlógu þeir.” Frá fundi utanríkismálanefndar í morgunVilhelm Hún sagði ummælin hafa verið sett fram til að undirstrika styrk Íslands í fiskveiðistjórnun og sagði að „við erum stórveldi þegar kemur að fiskveiðistjórnunarmálum.“ Hljóð og mynd fari ekki saman Diljá gekk einnig eftir því hvort ríkisstjórnin hygðist setja fram skýr og ófrávíkjanleg skilyrði fyrir mögulegum viðræðum við ESB og hvort ráðherrann væri tilbúinn að lýsa því yfir að skilyrðið væri fullt og varanlegt forræði Íslands yfir auðlindum sínum. Þar svaraði Þorgerður ekki með beinum hætti hvort slíkt yrði formlegt skilyrði, heldur sagði að það væri „alveg skýrt“ og sneri sér síðan að stjórnarandstöðunni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði það alveg skýrt að ríkisstjórnin myndi gera kröfu um fullt forræði yfir auðlindum landsins Vísir/Anton Brink Ráðherrann sakaði meðal annars þá flokka sem nú krefðust skýrra svara um að hafa áður staðið gegn því að þjóðin fengi „eðlileg afnot og gjöld fyrir sína auðlind“ og að hafa jafnframt komið í veg fyrir að auðlindaákvæði yrði sett í stjórnarskrá. Hún sagði því ekki fara saman „hljóð og mynd“ hjá stjórnarandstöðunni þegar hún talaði nú um forræði yfir auðlindum. Lægri vaxtakostnaður vegi þyngra en aðildagjöld Í framhaldinu spurði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hvort ríkisstjórnin hygðist upplýsa fyrir fram um ófrávíkjanleg skilyrði í mögulegum viðræðum við Evrópusambandið, hvort fullt og varanlegt forræði yfir auðlindum gæti farið saman við sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB, hvort fyrir lægi mat á nettógreiðslum Íslands til sambandsins og hvort unnið yrði sérstakt hagsmunamat fyrir íslenskt atvinnulíf. Þorgerður sagði að vinna væri þegar hafin á vegum ráðuneytisins, með aðkomu sérfræðinga, um hagsmunamat á stöðu Íslands og efnahagslegu öryggi, meðal annars í ljósi tollastríðs og alþjóðlegrar óvissu, og að nefndin yrði upplýst þegar niðurstaða lægi fyrir. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði út í nettógreiðslur til Evrópusambandsins. Þorgerður Katrín svaraði að lægri vaxtakostnaður heimilanna vegi þyngra en nettógreiðslurnar. Vísir/Einar Um nettógreiðslur sagði hún að miðað við sambærilegar forsendur og hjá Finnum gætu nettóframlög Íslands numið um 10 til 15 milljörðum króna á ári, en á móti myndu falla niður um 8 milljarðar sem Ísland greiðir nú þegar vegna EES-samningsins. Hún setti þá tölu í samhengi við skuldir íslenskra heimila, sem hún sagði nema um 3.200 milljörðum króna, og hélt því fram að hvert prósentustig í lægri vöxtum gæti skilað heimilunum um 32 milljörðum króna í lægri vaxtakostnað. Því gæti ávinningur af lægri vöxtum, ef til upptöku evru kæmi, að hennar mati vegið þyngra en aðildargjöldin. Þá sagði hún jafnframt að það væri skýr stefna ríkisstjórnarinnar að tryggja yfirráð Íslands yfir fiskveiðiauðlindinni og að hvorki hún né forsætisráðherra myndu skrifa undir samning sem tryggi ekki hagsmuni Íslands.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Utanríkismál Evrópusambandið Sjávarútvegur Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira