Of mikill snjór til að halda skíðamót í Hlíðarfjalli Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. mars 2026 13:32 Keppt var í mjög krefjandi aðstæðum í gær og keppni gat ekki farið fram í dag. BARDI WESTIN / WSTN STUDIO Veðurguðirnir hafa verið vondir í upphafi vikunnar og sett alþjóðlegt skíðamót í Hlíðarfjalli úr skorðum. Of mikill snjór féll í nótt til að halda keppni í dag en skipuleggjendur horfa fram á betri veðurspá á morgun.
Núna í vikunni fer alþjóðlega FIS bikarmótið 66 North Cup fram í Hlíðarfjalli. Þar er allt besta skíðafólk Íslands mætt til keppni ásamt erlendum keppendum. Um helgina fara svo fram Skíðamót Íslands í alpagreinum (í Hlíðarfjalli) og í skíðagöngu (á Ólafsfirði). Þegar bikarmótið hófst í Hlíðarfjalli í gær var gul viðvörun í gildi, snjóþunginn mikill og skyggnið slæmt. Annar keppnisdagur mótsins af þremur átti svo að fara fram í dag en keppni hefur verið frestað fram á morgundaginn. „Í gær kepptum við í krefjandi aðstæðum en þetta gekk allt upp, með mikilli hjálp frá sjálfboðaliðum sem mokuðu mikinn snjó og gerðu það að verkum að það var hægt að keppa. Svo hefur snjóað í alla nótt og það er svo sem búið að vinna í brekkunum í alla nótt líka, en það er mjúkt færi enn þá og það mun halda áfram að snjóa í dag. Þess vegna metum við það sem svo að við séum ekki með nægilegt skyggni eða nógu gott færi. Þannig að við færum mót dagsins yfir á morgundaginn og tökum þá tvær stórsvigskeppnir á morgun. Veðurspáin lítur vel út fyrir morgundaginn,“ sagði Kristinn Magnússon, mótsstjóri, í samtali við Vísi. Vonandi tekst að klára allar keppnir á morgun, því á fimmtudag verður önnur gul viðvörun í gildi yfir allt landið og ólíklega hægt að keppa. Miðað við veðurspána á morgun er Kristinn bjartsýnn á að það takist, en það mun líka krefjast mikils snjómoksturs hjá sjálfboðaliðum. „Já, það lítur bara frekar vel út á morgun. Við byrjum að vinna í brekkunum núna seinni partinn í dag og vinnum alla nóttina til að ná fram sem bestum aðstæðum. Hlíðarfjall vinnur þrekvirki þar. Svo verður mikið af fólki sem mun hjálpa okkur og við erum mjög þakklát fyrir það, alla sem koma að þessu móti. Það segir sitt um skíðahreyfinguna, hvað hún er samheldin, að það var fólk úr flestum skíðafélögum á landinu mætt til að moka í Hlíðarfjalli í gær. Við hjálpumst öll að í þessu,“ sagði Kristinn. Nánar má lesa um bikarmótið og Skíðamót Íslands á heimasíðu Skíðasambandsins.
Skíðaíþróttir Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Fleiri fréttir HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Dagskráin í dag: Tímatökur í Mónakó og æfingalandsleikir Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Þarf að draga sig úr keppni í undanúrslitum Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Örn tekur við karlaliði Selfoss Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Sjá meira