Óhjákvæmilegt að Ísland fái sjálfkeyrandi ökutæki Kristján Már Unnarsson skrifar 23. mars 2026 20:40 Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fór fyrir tillögunni um að hefja samtal um innleiðingu sjálfkeyrandi farartækja á Íslandi. Sigurjón Ólason Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að fela borgarstjóra að hefja samtal við stjórnvöld, Alþingi og viðeigandi stofnanir, um nauðsynlegar breytingar á lögum og reglum svo heimilt verði innleiða sjálfkeyrandi farartæki á Íslandi.
Það er ekki oft sem borgarfulltrúar minnihlutans fá samþykkta tillögu í borgarstjórn. Það gerðist þó í síðustu viku. Þetta var tillaga sem Friðjón R. Friðjónsson hafði forystu um að flytja fyrir hönd sjálfstæðismanna um að hefja undirbúning þess að sjálfkeyrandi farartæki verði leyfð á Íslandi. Friðjón sýndi jafnframt myndband á borgarstjórnarfundinum af sjálfkeyrandi strætisvagni í Hannover í Þýskalandi en rætt var við hann í kvöldfréttum Sýnar: „Þessi bylting, hún er rétt að koma til okkar. Það eru sjálfkeyrandi strætóar í Noregi, Svíþjóð, Hollandi, Finnlandi og út um alla Evrópu. En það þarf að samþykkja breytingu á lögum og reglum og svo framvegis,“ segir Friðjón. Tillagan lýtur einnig að fólksbílum, þar á meðal sjálfkeyrandi leigubílum, en áratugur er frá því fyrstu Waymo-leigubílarnir fóru að sjást á götum í Bandaríkjunum. „Við sjáum það líka að bílar eins og Waymo og sjálfkeyrandi leigubílar koma til London núna í haust og eru í mörgum borgum í Bandaríkjunum. Þannig að þetta er bara tækni sem er byrjuð að sanna sig.“ Sjálfkeyrandi strætisvagn í Stavanger í Noregi.Karsan Friðjón segir að hérlendis þurfi viðkomandi aðilar að hefja viðræður um breytingar á lögum og reglum sem í dag leyfi ekki ökutæki án ökumanna. „Ég held að þetta sé óhjákvæmilegt að það verði hér sjálfkeyrandi, fyrst sjálfkeyrandi almenningssamgöngur og leigubílar, og síðan verði bílar meira og minna sjálfkeyrandi. Það virðist vera, alla vega miðað við þau gögn sem koma út úr sjálfkeyrandi ökutækjum, að þau eru öruggari heldur en þegar maðurinn er að keyra,“ segir borgarfulltrúinn. Sjálfkeyrandi leigubíll frá Waymo.Getty En hversu hratt gæti þetta gerst? Hvenær gætum við vænst þess að sjá sjálfkeyrandi vagna á götum Reykjavíkur? „Það væri hægt að gera það innan tveggja ára ef að löggjafinn og allir hagaðilar koma sér saman um það. En verðum við ekki bara að vona það að kerfið verði röskt og fljótt í að ganga í verkið,“ segir Friðjón. Í hópi alþingismanna hefur Rósa Guðbjartsdóttir, Sjálfstæðisflokki, í opinberri umræðu hvatt til innleiðingar sjálfakandi bíla og lýsti fyrir jól eigin reynslu af akstri með slíkum leigubíl í þingræðu.
Borgarstjórn Bílar Strætó Samgöngur Reykjavík Tækni Tengdar fréttir Spáir sjálfkeyrandi vögnum á götunum innan fimm ára Framkvæmdastjóri Strætó spáir því að sjálfkeyrandi vagnar verði komnir á göturnar á höfuðborgarsvæðinu innan fimm ára. 2. september 2020 09:40 Fyrsti sjálfkeyrandi bíllinn á Íslandi Bíllinn tekur sex farþega í sæti en þarfnast ekki bílstjóra sem er jafnvel öruggara en þegar manneskja er undir stýri að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins sem á og rekur bílinn, sem var til sýnis á snjallborgarráðstefnunni í Hörpu í dag. 3. maí 2018 21:06 Spá því að við yfirgefum einkabílinn innan 15 ára fyrir þægindi og sparnað Ný bandarísk skýrsla spáir stórfelldri fækkun einkabíla og að árið 2030 fari Bandaríkjamenn 95 prósent allra ferða í sjálfkeyrandi rafbílum í eigu leigubílafyrirtækja. 17. maí 2017 21:30 Floti sjálfakandi leigubíla að koma á götur Phoenix Tímamót urðu í vikunni í notkun sjálfakandi bíla þegar tilkynnt var í Bandaríkjunum um fyrstu leigubílastöðina þar sem tölvur með gervigreind hafa alfarið tekið yfir hlutverk bílstjóra. 12. nóvember 2017 21:00 Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira
Spáir sjálfkeyrandi vögnum á götunum innan fimm ára Framkvæmdastjóri Strætó spáir því að sjálfkeyrandi vagnar verði komnir á göturnar á höfuðborgarsvæðinu innan fimm ára. 2. september 2020 09:40
Fyrsti sjálfkeyrandi bíllinn á Íslandi Bíllinn tekur sex farþega í sæti en þarfnast ekki bílstjóra sem er jafnvel öruggara en þegar manneskja er undir stýri að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins sem á og rekur bílinn, sem var til sýnis á snjallborgarráðstefnunni í Hörpu í dag. 3. maí 2018 21:06
Spá því að við yfirgefum einkabílinn innan 15 ára fyrir þægindi og sparnað Ný bandarísk skýrsla spáir stórfelldri fækkun einkabíla og að árið 2030 fari Bandaríkjamenn 95 prósent allra ferða í sjálfkeyrandi rafbílum í eigu leigubílafyrirtækja. 17. maí 2017 21:30
Floti sjálfakandi leigubíla að koma á götur Phoenix Tímamót urðu í vikunni í notkun sjálfakandi bíla þegar tilkynnt var í Bandaríkjunum um fyrstu leigubílastöðina þar sem tölvur með gervigreind hafa alfarið tekið yfir hlutverk bílstjóra. 12. nóvember 2017 21:00