Ábyrgð á brunavörnum í atvinnuhúsnæði Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar 17. mars 2026 08:01 Oft er rekstraraðili fyrirtækis ekki sá sami og eigandi byggingar. Hver ber þá ábyrgð á að brunavarnir byggingar séu í lagi? Í lögum er alveg skýrt að það er eigandi byggingarinnar sem ber ábyrgð á því að brunavarnir séu í lagi. Hvernig má stuðla að markvissu eftirliti? Þrátt fyrir að lögin séu skýr er iðulega þörf á verkaskiptingu milli eiganda húsnæðis og rekstraraðila. Gátlistar eru nauðsynlegir til að ná fram markvissu eftirliti og oft felur eigandi byggingarinnar leigutaka eða rekstraraðila að sjá um ákveðna þætti eldvarna. Slík ráðstöfun er ekki einungis skynsamleg heldur getur oft og tíðum verið nauðsynleg þar sem erfitt getur reynst fyrir húseiganda að sjá um eftirlit með daglegri umgengni og öryggi fólks. Verkaskipting þarf að vera skýr í þeim tilfellum þar sem rekstraraðili fyrirtækis og eigandi byggingar er ekki sami aðili. Góð samvinna og skýr ábyrgð Samkvæmt reglugerð um eldvarnir og eldvarnaeftirlit er ábyrgð eigenda og forráðamanna skipt. Þegar eigandi og forráðamaður er ekki sá sami þarf hlutverk hvers og eins að vera skýrt samkvæmt skriflegum samningi sem gerður er á milli eiganda og forráðamanns fyrirtækis. Góð samvinna og skýr ábyrgð allra aðila skilar bestum árangri. Á vef Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er þetta sett skýrt fram á eftirfarandi hátt: Ábyrgð eiganda Húsnæðið sé í góðu ástandi og í samræmi við samþykktar teikningar Allar meginbrunavarnir séu í lagi eins og lög og reglur kveða á um Dyr og björgunarop séu opnanleg innan frá án lykils eða annarra verkfæra Leiðar- og neyðarlýsing sé til staðar og í lagi Brunahólfun sé í lagi, brunahólfandi dyr virki rétt og séu þéttar Brunaviðvörunar-, vatnsúða- og önnur slökkvikerfi og reyklosunarbúnaður séu í lagi Ábyrgð rekstraraðila Allar flóttaleiðir séu greiðfærar þannig að skjót rýming úr byggingunni sé tryggð Leiðar,- og neyðarljós séu virk og í lagi þannig að fólk rati örugglega út ef upp kemur eldur Reykskynjarar séu virkir og rafhlöður í lagi Ruslsöfnun sé í lágmarki og aðgangur að handslökkvitækjum og öðrum slökkvibúnaði óheftur Upplýsa eiganda húsnæðis strax ef eitthvað kemur upp sem rýrir brunavarnir Eldvarnarstefna er lykilatriði Nauðsynlegt er að eldvarnastefna sé til staða en hún er yfirlýsing og skuldbinding stjórnenda og eigenda um að halda eldvörnum í lagi. Stefnan setur rammann um eldvarnastarf fyrirtækisins og í henni þarf að vera lýsing á eigin eldvarnaeftirliti fyrirtækisins, eða í það minnsta markmiðum þess og þá er hægt að vísa í önnur skjöl varðandi nánari útfærslu. Ásamt þessu þarf að undirbúa viðbragðsáætlanir til að tryggja rétt viðbrögð og öryggi starfsfólks ef eldur kemur upp. Markmiðið er ávallt að koma í veg fyrir tjón á fólki og eignum og að öll skili sér heil heim. F.h. Eldvarnabandalagsins,Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrefna Sigurjónsdóttir Slysavarnir Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar