Viðskipti innlent

Magnús hættir hjá Orku­sölunni

Atli Ísleifsson skrifar
Magnús Kristjánsson hefur stýrt félaginu frá árinu 2008.
Magnús Kristjánsson hefur stýrt félaginu frá árinu 2008. Orkusalan

Magnús Kristjánsson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Orkusölunnar eftir nær tvo áratugi í starfi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að Magnús hafi verið í fararbroddi félagsins nánast frá stofnun þess, eða frá janúar 2008.

„Magnús hverfur frá daglegum rekstri þann 1. apríl n.k. en verður áfram til ráðgjafar eftir þörfum til að styðja við þekkingaryfirfærslu og samfelldni í stjórnun fyrirtækisins. Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála hjá Orkusölunni, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. apríl. Heiða hóf störf hjá Orkusölunni árið 2019 og hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu sölu-, þjónustu- og markaðsstarfs fyrirtækisins. Heiða er með BSc gráðu í sálfræði og MS gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum.

Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála hjá Orkusölunni, mun taka tímabundið við starfi forstjóra.

Undir stjórn Magnúsar hefur Orkusalan vaxið og eflst, bæði sem traust fyrirtæki á orkumarkaði og sem eftirsóknarverður vinnustaður. Hann hefur lagt sérstaka áherslu á jákvæða vinnustaðamenningu, samvinnu og að skapa umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að blómstra og þróast í starfi,“ segir í tilkynningunni. 

Haft er eftir Magnúsi að hann líti til baka með miklu þakklæti. „Það hefur verið sannkallaður heiður að fá að leiða Orkusöluna öll þessi ár og vinna með hæfileikaríku og kraftmiklu starfsfólki. Ég vil þakka samstarfsfólki mínu innilega fyrir samfylgdina, traustið og öll þau verkefni sem við höfum tekist á við saman. Sjálfur hlakka ég mikið til að takast á við ný og spennandi verkefni,“ er haft eftir Magnúsi.

Ennfremur segir í tilkynningunni að stjórn Orkusölunnar færi Magnúsi bestu þakkir fyrir farsælt og mikilvægt framlag til félagsins. „Magnús hefur átt stóran þátt í uppbyggingu Orkusölunnar og þeim sterka grunni sem félagið stendur á í dag. Við þökkum honum fyrir framúrskarandi störf og óskum honum velfarnaðar í því sem fram undan er,“ segir Magnús Þór Ásmundsson, stjórnarformaður Orkusölunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×