Hagfræðileg brenglun í lagatextanum um verðtryggingu Örn Karlsson skrifar 9. mars 2026 12:31 Svo virðist sem nefndarmenn þeirrar nefndar sem bar ábyrgð á lagatextanum um verðtryggingu í lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, hafi ekki verið sérlega vel að sér um eðli vísitölu neysluverðs og hagræna þætti hennar. Þó sat í þessari nefnd fulltrúi Seðlabanka Íslands. Niðurstaðan var og er textagrautur hvar allt stangast saman og hvað rekst á annars horn. Textagrautur sem stríðir gegn hagfræðilegum staðreyndum, öðrum lögum og ekki síst stjórnarskrá. Tilefni þessa pistils er að við blasir hækkandi olíuverð á heimsmörkuðum vegna stríðsins í Miðausturlöndum. Hækkandi olíuverð nú stafar fyrsta kastið frá ótta um olíuskort og þegar lengra líður án þess að stríðinu ljúki, frá raunverulegum skorti. Við þessa áætluðu raunhækkun olíuverðsins hækkar vísitala neysluverðs, sem ákvarðar lögskiptin í verðtryggðum lánasamningum. Á þessum tímapunkti er rétt að benda á tvo hagræna meginþætti vísitölu neysluverðs. Annars vegar hækkar vísitalan þegar vöruverð hækkar að nafnverði vegna rýrnunar innra virðis greiðslumyntarinnar. Þennan þátt má kalla peningatengda verðbólgu eða kjarnaverðbólgu. Og hins vegar hækkar vísitala neysluverðs reglulega þegar einstakar vörur eða vöruflokkar hækka að raunvirði vegna atvika í umhverfi þeirra ótengdra peningum. Eins og áður segir er olían og afleiddar vörur nú um stundir að hækka að raunvirði en ekki vegna þess að greiðslumyntin okkar eða greiðslumyntir almennt séu að rýrna. Það er til marks um að vísitala neysluverðs felur í sér áðurnefnda tvo ólíka hagþætti að bestu seðlabankar í frjálsum hagkerfum leggja ríka áherslu á að nálgast gildi kjarnaverðbólgunnar, hinn peningatengda þátt vísitölu neysluverðs því stýritól seðlabanka virka svo til eingöngu á þann þátt. Lagatextinn um verðtryggingu er í VI kafla lagnanna nr. 38/2001, aðallega í 13. gr. og 14. gr. Af lagatextanum að ráða virðist sem nefndin hafi ekki haft veður af þeim möguleika að vísitala neysluverðs geti hækkað án þess að innra virði greiðslumyntarinnar sé í fasa rýrnunar. Þessu til stuðnings segir í umsögn með 13. gr. og 14. gr.: „Nefndin sem samdi frumvarpið var þeirrar skoðunar að opinberar reglur um verðtryggingu fjárskuldbindinga þjónuðu fyrst og fremst þeim tilgangi að verja almennt sparifé og lánsfé landsmanna fyrir rýrnun af völdum innlendrar verðbólgu…“ Þegar nefndin tilgreinir vísitölu neysluverðs til mats á rýrnun sparifjárins horfir hún annað hvort framhjá eða veit ekki af þeim reglulegu tilvikum þegar vísitalan hækkar vegna atvika í umhverfi einstakra vara eða vöruflokka óháðra rýrnun greiðslumyntarinnar. Nefndin staðfestir misskilning sinn á eðli vísitölu neysluverðs þegar hún tiltekur í 2. mgr. 13. gr. að afleiðusamningar falli ekki undir ákvæði kaflans um verðtryggingu. Í umsögn með frumvarpi til laganna er vísað til laga um verðbréfaviðskipti nr. 13/1996 um skilgreiningu á afleiðusamningum. Þágildandi lög um verðbréfaviðskipti, nr. 13/1996, eru þá orðin hluti af lögskýringargögnum er varðar verðtryggingu. Þar er afleiðusamningur skilgreindur svo: „Afleiðusamningur: Samningur þar sem uppgjörsákvæði byggist á breytingu einhvers þáttar, svo sem vaxta, gengis gjaldmiðla, verðbréfaverðs, verðbréfavísitölu eða hrávöruverðs. Andvirði slíks samnings er háð breytingu þessara viðmiðunarþátta á tilteknu tímabili.“ Ef nefndin hefði vitað að vísitala neysluverðs tekur ekki bara breytingum vegna rýrnunar greiðslumyntarinnar heldur einnig reglulega þegar vöruverð, þar með talið hrávöruverð, breytist vegna atvika óháðra breytingum á innra virði greiðslumyntarinnar hefði hún aldrei tilgreint að afleiðusamningar falli ekki undir ákvæði kaflans um verðtryggingu, því verðtryggðir lánasamningar eru einmitt afleiðusamningar í þeim tilfellum og á þeim tímabilum þegar vörur hækka í verði vegna atvika óháðra rýrnun greiðslumyntar. Þetta gildir samkvæmt skilgreiningunni á afleiðusamningum sem nefndinn sjálf og lögin vísa til! Ákvörðun löggjafans að afleiðusamningar falli ekki undir ákvæði verðtryggingar samhliða því að löggjafinn tilgreinir vísitölu neysluverðs til ákvörðunar lögskiptanna í verðtryggðum lánasamningum eru ósamrýmanleg ákvæði sem gera lögin að óframkvæmanlegri markleysu. Eins og bent var á getur afleiðuþáttur verðtryggingarinnar ekki verið hluti af verðtryggingunni samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laganna um vexti og verðtryggingu. Hingað til hafa skuldarar verðtryggðra lánasamninga þó verið látnir og neyddir til að greiða allar afleiður verðtryggðra lánasamninga á skjön við lagaákvæðið og á skjön við eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Um áramótin hækkuðu verðtryggðar skuldir heimilanna vegna „einskiptis“ breytinga á skatthlutföllum. Hinn ólöglegi afleiðuhluti verðtryggingarinnar tók þá um 12 milljarða kr. af eignum skuldugra fjölskyldna og færði fjármálastofnunum. Við vaxtalækkun Seðlabanknas og afleiddum skorti á íbúðarhúsnæði á fyrstu árum þessa áratugar virkjaðist afleiðuþáttur verðtryggingarinnar vegna raunhækkunar á verði húsnæðis. Lauslega má áætla að hinn ólöglegi afleiðuhluti verðtryggingarinnar hafi þá tekið af skuldugum fjölskyldum eignir að virði a.m.k. 70 milljarða kr. Það er nánast öruggt að hið ólöglega afleiðuandlit verðtryggingarinnar birtist á næstu mánuðum á ný og hirði eignir af skuldugum fjölskyldum og færi fjármálastofnunum vegna raunhækkunar olíu á heimsmörkuðum. Eins og áður er lýst munu verðtryggðir lánasamningar verða að afleiðusamningum samkvæmt skilgreiningu við þessar aðstæður því hækkun vísitölu neysluverðs verður að minnsta kosti að hluta af völdum stríðs í Miðausturlöndum en ekki vegna rýrnunar á innra virði greiðslumyntarinnar. Að Seðlabanki Íslands skuli verja verðtrygginguna með kjafti og klóm, þá misskiptingarskepnu og ójafnvægishvata efnahags, hlýtur að vera einhvers konar met í lélegum vinnubrögðum meðal seðlabanka í frjálsum hagkerfum. Talað er um að lýðræðisríki búi við frjáls hagkerfi. En er íslenska hagkerfið ef til vill ekki frjálst í ljósi þess að vilji aukins meirihluta almennings til afnáms verðtryggingar er hunsaður til áratuga? Höfundur er vélaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Örn Karlsson Mest lesið Er íslenskan að verða gestur í eigin landi? Petra María Ingvaldsdóttir Skoðun Hvernig Ráðhúsið var gert að hagsmunaskrifstofu á kostnað almennings Sigurður Sigurðsson Skoðun Veist þú hvað „foid“ er? Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir Skoðun Fiskurinn, valdið og tilfinningin fyrir fullveldi Karen María Jónsdóttir Skoðun Barátta við náttúru og yfirvald Jón Steinar Sæmundsson Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir Skoðun Já, ég styð aðildarviðræður Ólafur Margeirsson Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Ef þetta væri barnið þitt Arnar Kjartansson skrifar Skoðun Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Hvenær er maður þjófur og hvenær er maður ekki þjófur? Einar Helgason skrifar Skoðun Gerðu það sem ég segi, ekki það sem ég geri! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Frá fullveldi til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fögnum Heimsdegi hafsins 8. júní Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Er íslenskan að verða gestur í eigin landi? Petra María Ingvaldsdóttir skrifar Skoðun Barátta við náttúru og yfirvald Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Já, ég styð aðildarviðræður Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Veist þú hvað „foid“ er? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ETS, ESB og EES – Að fá sæti við borðið Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hvernig Ráðhúsið var gert að hagsmunaskrifstofu á kostnað almennings Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fiskurinn, valdið og tilfinningin fyrir fullveldi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Afskipti Rússlands og ESB: tvöfalt siðferði í nafni lýðræðis Júlíus Valsson skrifar Skoðun Gervigreind nýtist best með mannlegri þekkingu og reynslu Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal skrifar Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hver á að veita þjónustuna? Sandra B. Franks skrifar Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir Skoðun
Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir skrifar
Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Hvernig Ráðhúsið var gert að hagsmunaskrifstofu á kostnað almennings Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir Skoðun