Skipti ekki máli hvaðan olían er Árni Sæberg skrifar 6. mars 2026 14:44 Magnús svarar Degi fullum hálsi. vísir Framkvæmdastjóri N1 segir mikilvægt að umræða um verðlag á eldsneyti og áhrif hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu hér á landi byggi á staðreyndum. Olíufélögin hafa verið nokkuð gagnrýnd vegna verðhækkana í kjölfar árása á Íran, meðal annars af þingmanni og FÍB.
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í færslu á Facebook gær að umsvifalausar hækkanir á olíuverði í kjölfar árásanna hlytu að vekja spurningar. Eins og veðurfréttir „Ég skal viðurkenna að svona hækkanafréttir frá þeim eru aðeins eins og veðurfréttir. Eitthvað sem virðist óviðráðanlegt - og leiðinlegt.“ Hann vísaði í greiningu The Economist þess efnis að búast mætti við að áhrifin af átökunum myndu hafa áhrif á olíuverð, fyrst í Asíu en seinna í Evrópu. Ástæðan fyrir því væri að nánast ekkert af þeirri olíu sem seld er á Evrópumarkaði komi frá þessu svæði. „Í ljósi þess að birgðir eru alltaf einhverjar að þá hlýtur að mega - og verða - að spyrja hvernig á því standi að verð á dælu hækki um leið og heimsmarkaðsverð. Ég kannast nefnilega ekki við að það lækki um leið og heimsmarkaðsverð lækki - þá er sagt er verið sé að selja gamlar birgðir á "háa verðinu", ekki satt? Er ekki eitthvað bogið við þetta? Hver kann svör við þessu?“ Mikilvæg umræða Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1, hefur svarað þessum skrifum Dags, og umræðunni almennt, í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum í dag. Hann segir að umræða um verðlag á eldsneyti og áhrif hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu hér á landi vera mikilvæga, enda hafi eldsneytisverð veruleg áhrif á flest heimili og fyrirtæki í landinu. „Mikilvægt er þó að hún byggi á staðreyndum um þá þætti sem raunverulega móta verð á eldsneyti á hverjum tíma og staðan skoðuð með það í huga. Dagur B. Eggertsson vísaði í gær til fréttar Rúv þar sem fjallað var um áhrif hækkandi heimsmarkaðsverðs. Í þeirri umræðu var gefið í skyn að verðbreytingar hér á landi fylgdu heimsmarkaði ekki alltaf þegar verð lækkaði. Framkvæmdastjóri FÍB hafði í kjölfarið uppi svipaða orðræðu í sjónvarpsfréttum Rúv.“ Olíumarkaðurinn er alþjóðlegur Af því tilefni vilji N1 koma því á framfæri að olían sem seld er á Íslandi í dag komi að mestu frá Noregi. Verðið mótist einkum af þremur þáttum; heimsmarkaðsverði, gengi krónunnar gagnvart bandaríkjadal og álagi, sem feli meðal annars í sér flutningskostnað og annan kostnað frá erlendum birgja. „Spurt hefur verið hvers vegna norsk olía hækki þótt hún komi ekki frá Miðausturlöndum. Ástæðan er einföld: Olíumarkaðurinn er alþjóðlegur. Framleiðendur bjóða olíu sína á heimsmarkaði og verðið mótast þar, en ekki eftir landsvæðum. Framboð á einu landsvæði hefur því áhrif á verð annars staðar. Ef framboð minnkar til dæmis frá Miðausturlöndum er líklegt að eftirspurn eftir norskri olíu aukist. Þar með hækkar líka verð á olíu sem seld er til Íslands því verðið er beintengt við heimsmarkaðsverð olíu á hverjum tíma.“ Sé horft til þróunar á eldsneytisverði frá síðustu áramótum megi sjá að Brent-olía hefði hækkað um 20 prósent án gengisáhrifa áður en átök hófust í Íran, eða um 16 prósent með gengisáhrifum. Á sama tíma hefði verð á eldsneytisdælum hér á landi hækkað innan við tvö prósent að jafnaði. „Þegar þetta er ritað stendur heimsmarkaðsverð í um 83,5 USD, sem er 37% hækkun frá áramótum án gengisáhrifa (36% með gengisáhrifum), en hækkun verðs á eldsneytisdælum um 4%. Svipuð mynd sést þegar litið er til dísilolíu: heimsmarkaðsverð hennar hefur hækkað um 59% frá áramótum á meðan verð á eldsneytisdælum hefur hækkað um 3,5%.“ Áhrifin eigi eftir að koma fram Þessar tölur sýni að verulegur verðþrýstingur hefði myndast áður en átökin í Íran hófust, án þess að hann hefði að fullu skilað sér í verð til neytenda. Áhrifin af þessari miklu hækkun heimsmarkaðsverðs í kjölfar átakanna í Íran eiga því eftir að koma fram síðar . Frá 1. mars hafi verð á dísilolíu til dæmis hækkað um um 13 prósent í Svíþjóð og um 18 prósent í Danmörku. Sé litið til bensínverðs hafi það á sama tíma hækkað um um 7 prósent í Svíþjóð og um 4 prósent í Danmörku. „Umræða um verðlag og efnahagsmál er mikilvæg, en á sama tíma nauðsynlegt er að hún byggi á staðreyndum og sameiginlegum skilningi á þeim þáttum sem hafa áhrif á verðþróun. Það er sjálfsögð krafa að stjórnmálamenn og aðrir sem taka þátt í umræðunni tali af ábyrgð og byggi mál sitt á staðreyndum.“
Bensín og olía Verðlag Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Jarðefnaeldsneyti Neytendur Festi Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira