Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Hjörvar Ólafsson skrifar 6. mars 2026 20:56 Hilmar Smári Henningsson og samherjar hans hjá Stjörunni sýndu sparihliðar sínar í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Það var vægt til orða tekið himinn og haf á milli spilamennsku Stjörnunnar og Þórs Þorlákshafnar þegar liðin leiddu saman hesta sína í ÞG Verk-höllina í Ásgarði í kvöld en leikurinn var liður í 19. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta. Stjörnumenn hófu leikinn af mun meiri krafti og voru búnir að byggja upp 23-10 forskot þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Mikil ákefð var í varnarleik Stjörnuliðsins og sjálfstraust á hinum enda vallarins. Munurinn á liðunum var 10 stig, 32-22, eftir að fyrsta leikhluta lauk og gríðarlega orka og einbeiting skein úr leikmönnum Stjörnunnar sem voru augljóslega staðráðnir að ná í þau tvö stig sem í boði voru. Luka Gasic héldu engin bönd í þessum leik. Vísir/Hulda Margrét Stjarnan sló síður en svo slöku við þegar inn í annan leikhluta kom og jók forystu sína í upphafi leikhlutans. Giannis Agravanis kom Stjörnunni í 44-24 þegar hann tróð með tilþrifum og stuð og stemming innan vallar sem utan hjá heimamönnum. Þegar fyrri hálfleik lauk hafði Stjarnan skorað 69 stig á móti 39 stigum hjá Þór Þorlákshöfn og það var farið að votta fyrir vonleysi hjá gestunum. Stjörnumenn kæfðu Þórsara með feykilega öflugum varnarleik og heimamenn áttu svo einkar greiða leið að körfu gestanna sem virkuðu áhugalausir í varnarvinnu sinni. Það var ennþá hungur hjá leikmönnum Stjörnunnar í þriðja leikhluta þrátt fyrir að liðið væri með rúmlega 30 stiga forskot. Garðabæjarliðið sýndi gestunum enga miskunn og leiddi með 34 stigum, 96-62, fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Seth Leday átti fínast leik fyrir Stjörnuna. Vísir/Hulda Margrét Þegar yfir lauk fór Stjarnan með 59 stiga sigur af hólmi, 127-68, en liðið hefur 28 stig í öðru sæti deildarinnar eftir þennan sigur. Grindavík er á toppnum með 32 stig og Tindastóll í þriðja sæti með 26 stig en þessi lið mætast á Sauðárkróki annað kvöld. Þór Þorlákshöfn er hins vegar áfram í tíunda sæti með 10 stig og er einum sigri á undan Ármanni og ÍA sem stija í fallsætnum. Ármann og ÍA eiga leiki til góða á Þór Þorlákshöfn en Ármann sækir Njarðvík heim á morgun og Skagamenn sækja ÍR heim í Breiðholtið. Baldur Þór Ragnarsson og lærisveinar hans lögðu líkama og sál í verkefnið. Vísir/Hulda Margrét Baldur Þór: Ofboðslegs sáttur við orkuna og ástríðuna í varnarleiknum „Við spiluðum á háu orkustigi og af gríðarlegri ástríðu allar 40 mínúturnar og það gladdi mig mjög mikið. Varnarleikurinn var til fyrirmyndar og það skilaði sér yfir á sóknarhelminginn,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunar, stoltur af lærisveinum sínum. „Það er líka jákvætt að við höfum ekkert slakað á og haldið upp sömu ákefð allan leikinn. Það er ekkert sjálfgefið og við byggjum á þessu fyrir framhaldið,“ sagði Baldur Þór enn fremur. „Viktor Jónas kom sterkur inn í þennan leik en hlutverk hans og Bjarna Guðmanns mun stækka í ljósi fjarveru Orra Gunnarssonar. Það er enginn einn sem mun fylla skarð Orra sem er okkur ofsalega mikilvægur en Luka Gasic, Giannis Agravanis og fyrrnefndir leikmenn þurfa að hjálpast að við að skila framlagi í þrist og fjarka stöðunni,“ sagði hann. „Ungir og efnilegir leikmenn komu svo með ferska fætur inn í lokin og við gáfum einfaldlega í eftir að þeir komu inná. Við erum með stóran hóp og það lögðu allir einhver lóð á vogarskálina á parketinu í kvöld,“ sagði Baldur. Lárus Jónsson: Þriggja mánaða æfingabúðir hefðu ekki breytt niðurstöðunni „Við vorum fljótir að grafa okkur holu og náðum aldrei að krafla okkur upp úr henni að einhverju viti. Við vorum litlir í okkur og þeir náðu að ýta okkur út úr flestöllu sem við ætluðum að gera. Þeir höfðu líkamlega yfirburði í þessum leik og því fór sem fór,“ sagði Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, svekktur. „Það voru ítrekaðir tapaðir boltar og nokkrar aðgerðir okkar minntu frekar á leik í minnibolta en í meistaraflokki í efstu deild. Þetta var verulega slök frammistaða en nú þurfum við bara að skilja þennnan leik bakvið okkur og halda áfram,“ sagði Lárus þar að auki. „Þetta er ekki leikur þar sem við bjuggumst við því að ná í stig en auðvitað vildum við ekki fá svona stóran skell. Undirbúningurinn var bara hefðbundinn í landsleikjahléinu og ekkert þar sem skýrir þessa spilamennsku,“ sagði hann. „Ég held að þriggja mánaða æfingabúðir hefðu ekki breytt niðurstöðunni. Nú þurfum við bara að fara að undirbúa okkur vel fyrir næsta leik og koma betur gíraðir inn í næsta leik,“ sagði Lárus um framhaldið. Lárus Jónsson reynir að stappa stálinu í leikmenn sína. Vísir/Hulda Margrét Atvik leiksins Giannis Agravanis gladdi augað mest með kraftmiklum troðslum sínum. Þá var í raun aðdáunarvert að sjá hverju mikla vinnu og orkustig leikmenn Stjörnunnar lögðu í varnarleik sinn. Það skilaði sér svo um munar bæði með unnum boltum og auðveldum körfum á hinum enda vallarins. Giannis Agravanis lét körfuna finna fyrir því í nokkrum troðslum sínum. Vísir/Hulda Margrét Stjörnur og skúrkar Liðsvörnin lagði grunninn að þessum afar sannfærandi sigri Stjörnunnar. Luka Gasic skoraði svo mest fyrir Stjörnuliðið en hann setti niður 30 stig og Seth Leday, Hilmar Smári og Giannis Agravanis lögðu svo allir töluvert í púkkinn í sókarleiknum. Viktor Jónas Lúðvíksson fékk svo stærra hlutverk en fyrr í vetur að þessu sinni en mínútum mun fjölga hjá honum vegna brotthvarfs Orra Gunnarsson. Viktor Jónas skilaði sínu af stakri prýði í þessum leik en hann setti niður 14 stig og tók fimm fráköst. Viktor Jónas Lúðvíksson var öflugur á báðum endum vallarins. Vísir/Hulda Margrét Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir kumpánar Sigmundur Már Herbertsson, Jakob Árni Ísleifsson og Sigurbaldur Frímannsson, slógu fáar sem engar feilnótur í þessum leik og taktfastur og rytmískur flautukonsert þeirra færir með sjö í einkunn fyrir vel unnin störf sín. Stemming og umgjörð Silfurskeiðin var í miklu stuði í kvöld og söng allan lagalista sinn af mikilli innlifun. Það var glatt á hjalla í Garðabænum enda léku leikmenn Stjörnunnar við hvurn sinn fingur og sýndu mikla ástríðu í spilamennsku sinni. Það smitaði yfir til stuðningsmanna Stjörnuliðsins. Stjörnumenn í stúkunni voru eðlilega sáttir við Hilmar Smár Henningsson, Bjarna Guðmann Jónsson og liðsfélaga þeirra. Vísir/Hulda Margrét Bónus-deild karla Stjarnan Þór Þorlákshöfn Körfubolti