Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 14:01 Jónína Þórdís Karlsdóttir, fyrirliði Ármanns, skilaði svakalegum og sögulegum tölum í Frystikistunni í Hveragerði. Vísir/Anton Ármenningurinn Jónína Þórdís Karlsdóttir kom sér í mjög fámennan hóp með frammistöðu sinni í þríframlengdum leik í Hveragerði um helgina.
Jónína Þórdís endaði leikinn með 36 stig, 12 fráköst og 10 stoðsendingar og varð aðeins önnur íslenska körfuboltakonan frá upphafi til að ná þrjátíu stiga þrennu í efstu deild kvenna. Aðeins ein íslensk kona var í þessum hópi eða Helena Sverrisdóttir. Helena er því ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennu-hópnum. Jónína Þórdís naut vissulega góðs af því að spila í 55 mínútur í leiknum en hún hitti úr 13 af 26 skotum sínum þar af fjórum af tólf þriggja stiga skotum. Helena Sverrisdóttir náði þessu alls þrisvar sinnum á sínum ferli. Fyrst á tímabilinu 2005–2006 en síðast tvisvar með tveggja vikna millibili í marsmánuði 2016. Helena var aðeins sautján ára gömul þegar hún náði þessu fyrst í sigri á KR í desember 2005 en hún var þá með 33 stig, 13 fráköst og 10 stoðsendingar. Helena var þá með 32 stig, 17 fráköst og 11 stoðsendingar í sigri á Snæfelli 8. mars 2016 og svo með 30 stig, 20 fráköst og 15 stoðsendingar í sigri á Hamri 22. mars 2016. Svo skemmtilega vill til að Sylvía Rún Hálfdánardóttir var liðsfélagi Helenu í þeim tveimur leikjum árið 2016 en hún var liðsfélagi Jónínu Þórdísar í Hveragerði á laugardaginn. Danielle Rodriguez hefur náð þessu þrisvar sinnum en það var allt tímabilið 2017–18, eða löngu áður en hún fékk íslenskan ríkisborgararétt. Brittanny Dinkins er sú sem á flestar þrjátíu stiga þrennur í sögu efstu deildar kvenna eða fimm talsins.
Bónus-deild kvenna Ármann Mest lesið Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Landsliðskona í Val Handbolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira