Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. mars 2026 13:34 Richard Walker er sonur Malcolm Walker, stofnanda Iceland Foods. Hér sést hann bjóða Keir Starmer inn í eina af verslunum fyrirtækisins en rétt er að geta þess að myndin var tekin áður en Starmer varð forsætisráðherra. Getty/Stefan Rousseau Stjórnendur bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods Ltd. hafa ákveðið að falla frá tilraunum sínum til að tryggja sér vörumerkið „Iceland“, eftir að hafa tapað í baráttunni við íslenska ríkið í þriðja sinn í fyrra.
Forstjórinn Richard Walker sagði í samtali við Financial Times í dag að hann hygðist taka þau hundruð þúsunda punda sem fyrirtækið hefði varið í mögulega fjórðu og fimmtu tilraun fyrir dómstólum og verja þeim frekar í afslátt til handa íslenskum neytendum. Samkvæmt umfjöllun Guardian mun afslátturinn skila sér í formi afsláttarmiða, sem Íslendingar munu geta nýtt í verslunum Iceland. Framkvæmdin hlýtur þó að verða einhver önnur, þar sem verslunum Iceland á Íslandi hefur verið lokað. Vörur frá Iceland eru nú seldar í öðrum verslunum, til að mynda Nettó. Vísir greindi frá því síðasta sumar að dómstóll Evrópusambandsins hefði staðfest niðurstöðu Hugverkastofu ESB varðandi vörumerkið „Iceland“ og hafnað kröfum Iceland Foods Ltd. um ógildingu. Niðurstaðan hefur það í för með sér að Iceland Foods Ltd. getur ekki lengur hindrað íslensk fyrirtæki frá því að auðkenna sig með upprunalandinu við markaðssetningu innan Evrópusambandsins. Það var íslenska ríkið sem höfðaði upphaflega málið árið 2016. Dómstóll ESB staðfesti þá niðurstöðu að fyrirtæki gætu ekki eignað sér landfræðileg heiti. „Við töpuðum í þriðja sinn. Við erum hætt. Og það er í fínu lagi; við þurfum ekki að breyta nafninu okkar,“ sagði Walker við Financial Times. Hann sagði hins vegar ákveðið áhyggjuefni að nú gætu óskyldir aðilar opnað verslanir, kallað þær Iceland og selt vörur frá Iceland Foods.
Deila Íslands og Iceland Foods Verslun Neytendur Matvöruverslun Utanríkismál Bretland Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira