Veður

Köldu lofti beint til landsins

Atli Ísleifsson skrifar
Heldur kólnar er líður á daginn og hiti nálægt frostmarki seinnipartinn.
Heldur kólnar er líður á daginn og hiti nálægt frostmarki seinnipartinn. Vísir/Vilhelm

Milli Íslands og Grænlands er nú víðáttumikil lægð sem beinir köldu lofti úr suðvestri til landsins.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði því sunnan- og suðvestan kaldi eða strekkingur í dag en við Breiðafjörð og á Vestfjörðum megi búast við allhvössum vind um tíma síðdegis.

„Líkt og gjarnan fylgir suðvestanáttum þá verður éljagangur sunnan- og vestantil og inn á milli má búast við dimmum éljum með takmörkuðu skyggni en bjartviðri í öðum landshlutum. Heldur kólnar er líður á daginn og hiti nálægt frostmarki seinnipartinn.

Á morgun verður keimlíkt veður, sunnan og suðaustan stinningsgola eða kaldi, él og hiti 0 til 4 stig en léttskýjað að mestu og vægt frost norðan- og austanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Suðlæg átt, 5-13 m/s og él, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti um og undir frostmarki.

Á föstudag: Gengur í sunnan- og suðaustan 13-20 m/s með snjókomu, eða slyddu, en rigningu suðaustantil. Úrkomuminna norðanlands. Hlýnar í veðri og hiti 0 til 6 stig seinnipartinn.

Á laugardag: Hvöss sunnan- og suðvestanátt og snjókoma eða slydda, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 4 stig.

Á sunnudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og dálítil él, en bjart að mestu fyrir norðan og austan. Frost 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við sjóinn.

Á mánudag: Suðaustlæg átt með snjókomu, slyddu eða rigningu og heldur hlýnandi veðri, en að mestu bjart norðaustantil.

Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu, en þurrt að mestu norðaustanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×