Veður

Ört dýp­kandi lægð á leiðinni og appel­sínu­gular við­varanir

Atli Ísleifsson skrifar
Frost á landinu verður á bilinu núll til átta stig.
Frost á landinu verður á bilinu núll til átta stig. Vísir/Vilhelm

Ört dýpkandi lægð er nú á leið til norðurs fyrir austan land og fylgja henni vaxandi norðvestanátt á austurhelmingi landsins. Reikna má með 18 til 28 metrum á sekúndu á þeim slóðum eftir hádegi, hvassast í vindstrengjum á Austurlandi og Austfjörðum.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að auk þessa mikla vinds sé útlit fyrir snjókomu og skafrenningskóf á svæðinu frá Tröllaskaga og austur á firði. Frost á landinu verður á bilinu núll til átta stig.

„Gular viðvaranir taka gildi í tilheyrandi landshlutum í dag, og versti kaflinn á spásvæðunum Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum hefur verið rammaður inn með appelsínugulri viðvörun. Þar má búast við stórhríð þegar verst lætur og einnig er spáð slíkri veðurhæð að möguleiki er á foktjóni, t.d. að losni þakplötur á stöku stað.

Á vestanverðu landinu verður vindur mun hægari, yfirleitt kaldi eða strekkingur og él fram eftir degi, en þurrt að mestu suðvestanlands. Svalt í veðri.

Í kvöld styttir upp fyrir austan, þá fer einnig að draga úr vindi og í fyrramálið verður þetta illviðri úr sögunni.

Á morgun nálgast næsta lægð úr suðvestri. Þá gengur í allhvassa eða hvassa suðaustanátt sunnan- og vestanlands með snjókomu og síðar rigningu eða slyddu, og líkur eru á að færð spillist á einhverjum fjallvegum um tíma. Á norðaustanverðu landinu verður vindur hins vegar hægari og lengst af úrkomulítið. Hlýnar í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Seint á morgun dregur úr vindi, og á miðvikudag er svo útlit fyrir sunnan kalda eða strekking með éljum sunnan- og vestantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Gengur í suðaustan 13-20 m/s með snjókomu og síðan rigningu eða slyddu, en hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hlýnandi, hiti 0 til 8 stig síðdegis. Suðaustan og sunnan 8-15 um kvöldið og kólnar vestanlands með éljum.

Á miðvikudag: Sunnan og suðvestan 5-13 og él sunnan- og vestanlands, annars bjart að mestu. Frost víða 0 til 5 stig.

Á fimmtudag: Suðlæg átt 5-13 og él, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti breytist lítið. Vaxandi suðaustanátt um kvöldið með slyddu eða snjókomu sunnanlands.

Á föstudag: Ákveðin sunnanátt og snjókoma eða él, en styttir upp á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti um eða undir frostmarki.

Á laugardag: Hvöss sunnan- og suðaustanátt og snjókoma eða slydda, en rigning um tíma á láglendi. Úrkomuminna seinnipartinn. Hiti um eða yfir frostmarki.

Á sunnudag: Suðvestanátt og él, en bjart að mestu norðaustanlands. Hiti kringum frostmark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×