Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Kjartan Kjartansson skrifar 26. febrúar 2026 10:40 Mexíkóskt herskip með hjálpargögn við akkeri við Havana á Kúbu. Íbúar eyjunnar hafa átt erfitt uppdráttar undanfarið vegna verulegra efnahagsþrenginga og orkuskorts. AP/Ramón Espinosa Kúbverskt herskip skaut fjóra menn til bana og særði sex til viðbótar á báti sem skráður er í Bandaríkjunum í gær. Stjórnvöld á eyjunni segja bátverjana hafa skotið fyrst. Þeir séu útlagar sem hafi ætlað að fremja hryðjuverk á Kúbu.
Atvikið átti sér stað um mílu norðaustur af Cayo Falcones, sandrifi á norðurströnd Kúbu í gær. Kúbversk stjórnvöld segja að mennirnir um borð í bátnum hafi skotið á áhöfn herskipsins þegar hún ætlaði að hafa afskipti af þeim. Einn kúbverskur hermaður hafi særst. Fjórir bátverjanna hafi fallið þegar hermennirnir svöruðu skothríðinni og sex særst. Báturinn er sagður skráður á Flórída í Bandaríkjunum. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði bandarísk stjórnvöld reyna að sannreyna frásögnina og komast að því hvort að bátverjarnir séu bandarískir borgarar eða búsettir þar. Hann fullyrti að mennirnir hefðu ekki verið á vegum bandarískra stjórnvalda og að enginn útsendari alríkisstjórnarinnar hefði verið um borð í bátnum. „Það er ekki hægt að treysta kúbversku ríkisstjórninni og við gerum allt sem í okkar valdi stendur til þess að gera þessa kommúnista ábyrga,“ sagði James Uthmeier, dómsmálaráðherra Flórída. Segir bróður sinn hafa orðið þráhyggju að bráð Stjórnvöld í Havana fullyrða að bátverjarnir séu útlagar sem eigi sér langa brotasögu og séu á móti kommúnistastjórninni. Þau nafngreindu tvo þeirra sem þau sögðu hafa verið eftirlýsta fyrir aðild að hryðjuverkum. Bátverjarnir hafi verið klæddir í feluliti og skotheld vesti og verið vopnaðir hríðskotarifflum, skammbyssum og heimagerðum sprengjum. Þeir hafi ætlað að smygla sér inn í landið. Kort AP-fréttastofunnar sem sýnir hvar kúbverskt herskip skaut á bát sem skráður er á Flórída.AP Bróðir eins mannanna sem kúbversk stjórnvöld nafngreindu sagði AP-fréttastofunni í gær að hann syrgði nú fallinn bróður sinn. Sá hefði verið bandarískur ríkisborgari. Hann harmaði jafnframt að bróðirinn hefði orðið „þráhyggjukenndum og djöfullegum leiðangri“ til að frelsa Kúbu að bráð. „Þeir voru svo helteknir að þeir hugsuðu ekki um afleiðingarnar eða eigin líf,“ sagði Misael Ortega Casanova, bróðir Michel Ortega Casanova sem Kúbverjar segjast hafa drepið. Þrengja enn frekar að Kúbu Spenna á milli bandarískra og kúbverskra stjórnvalda hefur farið vaxandi að undanförnu, ekki síst eftir að Bandaríkjastjórn rændi Nicolás Maduro, forseta Venesúela og einum helsta bakhjarli kommúnistastjórnarinnar í Havana. Kúbverjar glímdu við mikla erfiðleika fyrir en þeir hafa stóraukist eftir að Bandaríkjastjórn hótaði að refsa hverju því ríki sem seldi þeim olíu. Bandaríkjamenn hafa sjálfir drepið tugi manna á bátum á Karíba- og Kyrrahafi utan laga og reglna á undanförnum mánuðum á þeim forsendum að þeir hafi verið notaðir til þess að smygla fíkniefnum.
Kúba Bandaríkin Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Fleiri fréttir „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Sjá meira